Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, upplýsingafulltrúi Íslenskrar erfðagreiningar, er sterklega orðuð við stöðu formanns SÁÁ. Einar Hermannsson sagði af sér sem formaður í vikunni eftir að upp komst um vændiskaup hans af konu með fíknivanda.
Þóra Kristín situr í stjórninni og sagði hún við Vísiað hún hafi fengið hvatningu, er hún nú að hugsa málið hvort hún bjóði sig fram.
Það eru margir sem vilja fá hana, þar á meðal Gunnar Smári Egilsson, fyrrverandi formaður samtakanna, sem segir á Facebook:
„Þetta styð ég heilshugar. Þóra Kristín er réttsýn, ákveðin, eldklár og þrælskemmtileg. SÁÁ ætti að stökkva til og segja: Já, takk.“
Þór Saari, fyrrverandi þingmaður, vill þó fá hana í annað starf:
„Ég vill fá hana sem fréttastjóra RÚV.“ Tekur hann þó undir það sjónarmið að of seint sé að „bjarga RÚV“. „Líklega, en það er bannað að gefast upp.“