„Jæja, er þetta ekki gengið nógu langt?,“ spyr sósíalistaforinginn Gunnar Smári Egilsson á Facebook í kvöld. Gagnrýnir hann fréttaflutning af innrás Rússa í Úkraínu harðlega og biður menn um að halda aftur af sér fögnuði á nýju köldu stríði.
Beinir hann orðum sínum að RÚV:
„Nú býður Ríkissjónvarpið upp á sálgreiningu finnsks rithöfundar á rússneskri þjóðarsál, að hún tigni vald og þrái ekkert heitar en að fórna sér fyrir föðurlandið. Þessi lýsing er klassísk lýsing á "hinum", að þeir séu hópsálir sem auðvelt ert stýra og narra til að fremja ódæði á meðan "við" erum einstaklingar og höfum innra með okkur siðferðiskompás,“ segir Gunnar Smári:
„Svona tala Evrópumenn um múslima og þannig töluðu Bandaríkjamenn um Japani í stríðinu. „Rússinn tekur allt sem hann getur þegar hann er í þessum Miklagarðsham,“ var sagt í Ríkisútvarpinu.“
Hann er ekki par sáttur við þetta og segir Rússa málaða upp sem grýlu:
„Inn í hvaða sturlun erum við lent? Er verið að efna til óvildar gegn Rússum og öllu sem rússneskt er? Er ekki kominn tími til að sumir slappi aðeins af, haldi aðeins aftur af fögnuði sínum yfir endurkomu kalda stríðsins?“