Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins og fyrrverandi fjölmiðlamaður, kallar eftir því að Ríkisútvarpið gefi ágóðann af lestri jólakveðja til hjálpar- og mannúðarsamtaka.
Í færslu á Facebook bendir hann á að frá tíufréttum í kvöld og til miðnættis annað kvöld verði ekkert á dagskrá Rásar 1 í útvarpinu annað en fréttir, veður dánartilkynningar og svo lestur jólakveðja.
„Mér sýnist það vera rúmar þúsund mínútur (17 klukkustundir) sem fara í jólakveðjurnar. Ég sá ekki í fljótu bragði hvað orðið kostar, en reikna með að það sé á sama prís og í dánartilkynningum, 298 kr. stykkið. Ég tók tímann á mér og sýnist ég ná að lesa um 100 orð á mínútu í hægum hátíðlegum lestri. Ef við reiknum með að 95% af þessum rúmu þúsund mínútum sé virkur lestur þá ætti Ríkisútvarpið að ná inn rétt tæplega 29 m.kr. á jólakveðjunum. Mér finnst að stofnunin eigi að gefa þetta til hjálpar- og mannúðarsamtaka. Það myndi Jesúbarnið gera,“ segir hann.
Gunnar Smári bætir svo við að jólakveðjurnar séu komnar út í einhverja vitleysu.
„Svipað og Þorláksmessuskatan, sem var æt í mínu ungdæmi en hefur síðan orðið kæstari og kæstari svo það er frekar íþrótt en næring að borða hana. Hvort tveggja eru fallegir siðir sem hafa orðið einhverju óhófi og yfirgengju að bráð. Eins og svo margt kringum blessuð jólin.“