Gunnar Smári segir Hannes Hólm­stein vera „á kafi í Göbbelskum á­róðri“

Gunnar Smári Egils­son og Hannes Hólm­steinn Gissurar­son áttu í orða­skiptum á Face­book eftir að sá fyrr­nefndi hafði deilt skoðana­grein sem birtist á Vísi þar sem hann ræðir skatta­mál.

Gunnar Smári segir í grein sinni að al­menningur borgi fyrir skatta­lækkun hinna ríku.

„Miðað við skatta­fram­töl fyrir árið 2021 má gera ráð fyrr sveitar­fé­lögin missi um 19 milljarða króna vegna þess að út­svar er ekki lagt á fjár­magns­tekjur. Og þá bara vegna tekna 1% tekju­hæsta fólksins. 6 milljarða til til við­bótar ef við tökum fjár­magns­tekjur annarra með.“

Hannes Hólm­steinn segir það sé fróð­legt að skoða hverjir greiða skatta. „Það eru aðal­lega þeir tekju­hæstu. Hvað myndi gerast ef þau 10% sem afla hæstu teknanna, myndu öll flytja til út­landa? Myndu þeir, sem eftir sætu, koma í þeirra stað, svo að ekkert myndi breytast?“ segir Hannes Hólm­steinn í at­huga­semd við færsluna hjá Gunnari Smára.

„Það yrði ei­líf jól,“ svarar Gunnar Smári. „Kosturinn við ís­lenska auð­valdið er að það hefur ekkert lagt til sam­fé­lagsins og allur auður þess byggir á auð­lindum sem eru fastar við landið. Það er engin hótun um að fara með verk­smiðjur til Kína eða neitt slíkt. Allt sem auð­valdið á hefur það rænt af al­menningi. Það mætti því fara á morgun, það kæmi smá högg þegar það færi með ráns­fenginn sinn en eftir það yrði allt betra,“ segir Gunnar Smári.

Hannes Hólm­steinn deildi síðan grein með Gunnari Smára sem titluð er „The Rich Pay More with Lower Tax Rates.“ Gunnar Smári tekur ekki vel í það og segir síðuna sem greinin birtist á vera „hlægi­leg á­róðurs­maskína banda­rískra auð­kýfinga.“

„Þú ert prófessor við há­skóla; af hverju ertu að dreifa svona þvælu? Ekki að undra að þér hafi verið meinað að kenna í mörg ár og ekki fengið neitt birt í rit­rýndum greinum, þú ert á kafi í Göbbelskum á­róðri,“ segir Gunnar Smári.