Gunnar Smári segir ekki sjálfgefið að bjarga fyrirtækjum: „Ég næ því ekki“

„Af hverju þarf að bjarga fyrirtækjunum? Mér finnst það ekki sjálfgefið. Hótel sem ekki fær neinn gest í þrjá mánuði, til hvers þarf að halda því fyrirtæki lifandi í gegnum þann öldudal. Hótelið fer ekkert, það má loka því og opna seinna, mögulega þarf einn húsvörð til að ganga um og vakta að ekki leki ofn og að gert verði við brotna rúðu,“ segir Gunnar Smári Egilsson, formaður Sósíalistaflokksins, í pisti á Facebook

Viðbúið er að COVID-19 faraldurinn hafi mikil áhrif á fyrirtæki í ferðaþjónustu sem og öðrum. Hafa stjórnvöld boðað beinan stuðning við fólk og fyrirtæki.

Gunnar Smári segir að hann skilji að starfsfólkið fari heim á borgaralaunum frá ríkissjóði og þegar ferðabönn verða aflétt megi svo keyra upp reksturinn að nýju, fyrst á einu hóteli, svo á tveimur og svo eftir þörfum. „En til hvers þarf að halda fyrirtækinu sjálfu, eignarhaldi eigandans yfir rekstrinum á lífi? Ég næ því ekki,“ segir hann.

Segir hann að með því að láta fyrirtækin fara í þrot megi endurmeta verðmæti eignanna og hefja rekstur á skaplegri grunni. „Hvers vegna er það svo mikilvægt að þetta þunna eignarhald haldi í gegnum þann öldudal sem við erum að fara í gegnum. Ef markmiðið er að tryggja afkomu launafólksins er miklu ódýrar og áhættuminna að láta starfsfólkið fá peninginn beint.“

Ef ríkið láti fyrirtækin fá peninginn muni margir eigendur nota þá til að borga lán sem þeir eru í ábyrgð fyrir. Nefnir hann sem dæmi „ uppdiktaða skuld við frænda sinn“. E“ru þetta ýkjur? Sambærileg aðstoð Davíðs Oddssonar við Kaupþing í Hruninu miðju gufaði upp svo enginn hefur getað svarað í hvað hún fór, yfir hundrað milljarðar króna á núvirði. Vill fólk taka áhættu á slíku aftur?“