Gunnar Smári Egilsson, formaður Sósíalistaflokksins, segir Seðlabankann vera henda ungu fólki fyrir úlfana með nýjasta útspili sínu í gær er Seðlabankinn ákvað að veðsetningarhlutfall á fyrstu kaupendur á fasteignamarkaði úr 90% í 85%.
„Það merkir að ungt fólk sem vill kaupa 60 fermetra íbúð á höfuðborgarsvæðinu, sem kostar í dag að meðaltali um 39 m.kr., þarf að leggja fram 5.850 þús. kr. sem eigið fé til kaupanna. Fyrir ári kostaði sama íbúð um 32,5 m.kr. og þá dugði unga fólkinu að leggja fram 3.250 þús. kr. Til að komast í eigið húsnæði þarf unga fólkið því að leggja fram 2,6 m.kr. meira í útborgun í dag en í fyrra, mest vegna breyttra reglna Seðlabankans en einnig vegna verðhækkana,“ skrifar Gunnar Smári.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri sagði á mbl.is í gær að með þessu væri mögulega verið að bjarga fólki frá því að koma inn á markaðinn á röngum tíma. Hann bætti við að ungt fólki þurfi líklegast að búa lengur í foreldrahúsum en margir hafa bent á það sé ekki möguleiki fyrir alla. Gunnar Smári segir þetta falska væntumþykju.
„Þetta eru ekki góð tíðindi fyrir ungt fólk. Færri komast nú af hinum andstyggilega leigumarkaði þar sem stjórnvöld leyfa bröskurum og okrurum að mergsjúga leigjendur. Ef þú kaupir 39 m.kr. íbúð með 90% verðtryggðu láni með 2,8% vöxtum, eins og Lífeyrissjóður verslunarmanna býður upp á í dag, þarftu að greiða af láninu tæplega 122 þús. kr. á mánuði. Með fasteignagjöldum verður kostnaðurinn tæplega 128 þús. Kr,“ skrifar Gunnar Smári.
„Það er engin leið að þú getir leigt 60 ferm. íbúð á því verði í dag. Meðalverð þinglýstra samninga er um 188 þús. kr. Félagslegar leiguíbúðir, stúdentaíbúðir og íbúðir Bjargs halda niðri meðalverði þinglýstra samningar. Verðið á svona íbúð á almennum markaði er líklega um 230 þús. kr. í dag.“
„Unga fólkið sem ekki á þessar auka 2,6 m.kr. er því dæmt til að greiða mánaðarlega 110 þús. kr. hærri húsnæðiskostnað en ef það fengi að kaupa íbúð. Það er því ólíklegra að unga fólkinu takist að safna upp í útborgun. Besta leiðin til að ná því væri að losna af leigumarkaði.“
„Svona er þetta nú allt öfugsnúið í ríki Ásgeirs Jónssonar Seðlabankastjóra, Bjarna Benediktssonar efnahagsmálaráðherra og Sigurðar Inga Jóhannssonar húsnæðismálaráðherra. Til að vinna á verðbólgu og eignabólu vilja þessir herramenn að unga fólkið borgi 110 þúsund krónum meira í húsnæðiskostnað. Hversu galið er það?“ skrifar Gunnar.
Hann gefur lítið fyrir réttlætingar Seðlabankans.
„Réttlætingin fyrir aðgerðinni er sú, að Seðlabankinn sé að vernda unga fólkið fyrir fjárhagslegum skakkaföllum. Braskarar hafa spennt upp fasteignaverð og það er ekki ólíklegt að það dunki á næstunni. Þá getur ungt fólk með þunnt eigið fé, aðeins 10% mörg fyrstu ár kaupanna, lent í vandræðum. Jafnvel misst íbúðina.
En það mætti setja lög til að vernda fólk sem er að kaupa sér húsnæði, banna lánardrottnum að taka íbúðir af fólki í tímabundnum fjárhagserfiðleikum eða sem lent hefur í tímabundinni verðlækkun húsnæðis.“
„Önnur aðgerð væri náttúrlega að regluvæða leigumarkaðinn og stöðva okrið þar, eins og gert hefur verið í nágrannalöndum okkar. En Ásgeir, Bjarni og Sigurr Ingi hafa engin slík áform uppi.
Besta leiðin til að slá áSigurður hækkun húsnæðisverðs er að ráðast að meininu sjálfu, sem er braskvæðing markaðarins. Undanfarin ár hafa æ fleiri íbúðir farið til fólks og fyrirtækja sem eiga fleiri en eina íbúð, ekki til hefðbundinni kaupenda sem eru að kaupa heimili fyrir fjölskyldu sína.“
„Það er þessi ásókn braskara inn á markaðinn sem hefur spennt upp verðið. Þar sem þeir ætla að setja íbúðirnar út á óregluvæddan leigumarkað geta braskararnir borgað mun hærra verð en venjulegir kaupendur. Braskararnir ætla sér ekki að borga þessar íbúðir sjálfir heldur láta leigjendur borga þær fyrir sig.
Skaðinn af þessu er tvöfaldur. Fyrst hækkar fasteignaveð svo færri komast inn á séreignamarkað. Svo hækka braskararnir leiguna svo þau sem eru föst á leigumarkaði eru ólíklegri til að geta safnað fyrir útborgun í æ dýrari íbúðir,“ bætir Gunnar smári við.
Hann segir sáraeinfalt að draga úr áhrif braskara. „Halda mætti veðhlutfalli fyrstu kaupenda óbreyttu í 90% og 85% hjá fólki sem á íbúð en ætlar sér að endurnýja. Veðhlutfall hjá þeim sem eiga íbúð og vilja kaupa aðra íbúð mætti hins vegar lækka í 50% og í 25% hjá þeim sem ætla að kaup sér þriðju íbúðina. Og fyrir fólk og fyrirtæki sem á þegar þrjár íbúðir mætti veðhlutfallið vera 0%, þau yrði að staðgreiða íbúðirnar.“
„Þessi aðgerð myndi slá mun fyrr á markaðinn og hafa jákvæðari áhrif en að hrekja ungt fólk frá eignakaupum og út á leigumarkaðinn. En þeim Ásgeiri, Bjarna og Sigurði Inga finnst vænna um braskara en ungt fólk og þess vegna dettur þeim ekki í hug svona aðgerð. Þannig er það bara,“ skrifar Gunnar smári að lokum.