Gunnar Smári segir að einhver þurfi að taka utan um Davíð Oddsson

Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins, hefur brugðist við nokkuð beinskeyttum skrifum sem birtust í Staksteinum Morgunblaðsins í dag.

Þar var vitnað í skrif Sigurðar Más Jónssonar um Kúbu sem er eitt af þeim ríkjum þar sem íbúarnir „njóta þeirra forréttinda“ að fá að búa við stjórn yfirlýstra sósíalista eins og segir í Staksteinum.

Þar víli stjórnvöld ekki fyrir sér að beita öllum þeim ofbeldismeðölum sem finnast í bókum harðstjórnar; barsmíðum, niðurlægingum, ferðatakmörkunum, fangelsun, sektum, einelti, eftirliti og þvinguðum starfslokum.

„Hér á landi, þar sem íbúarnir fá ekki að njóta þessa hreina sósíalisma, aðeins óþarflega mikilla ríkisafskipta á ýmsum sviðum og hærri skatta en góðu hófi gegnir, vantar allnokkuð upp á slíka harðstjórn og ofríki,“ segir staksteinahöfundur dagsins sem segir þó að ekki sé ástæða til að örvænta.

„Á dögunum fréttist af því að Sósíalistaflokkurinn hefði lagt upp í langferð um landið í Sósíalistarútunni og hygðist sækja að fólki hvar sem því yrði við komið, meðal annars í leit að frambærilegum frambjóðendum. Verði góð stemning í rútunni er aldrei að vita nema hægt verði að bjóða upp á lista sem geti boðið landsmönnum upp á sæluríki að hætti kúbverskra stjórnvalda.“

Gunnar Smári bregst við þessum skrifum sem birtast í Morgunblaðinu í dag og segir að framtíðarsýn Davíðs sé vissulega dökk.

„Davíð Oddsson sér fram á að ferð sósíalista um landið muni leiða til barsmíða, opinberrar niðurlægingar, ferðatakmarkana, fangelsun til lengri og skemmri tíma, sekta, eineltis á netinu, eftirlitis og þvingaðra starfsloka. Og að tjáningarfrelsi verði skert, félagasamtök bönnuð, samkomur, málefnahreyfingar og fjölmiðlar sömuleiðis. Einnig að mannréttindasamtök muni lýsa yfir áhyggjum af því hvort landsmenn fái réttláta málsmeðferð fyrir dómstólum,“ segir Gunnar Smári sem bætir við að lokum:

„Ég kann ekki að hugga manninn, reyndi það nokkuð með skrifum í blöð á árum áður, en vona að einhver finni hjá sér hvöt til að taka utan um manninn.“