Gunnar Smári rýnir í kristalskúluna: Svona verður ráðherraskipanin ef spá hans gengur eftir

Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins, hefur trú á því að tiltölulega litlar breytingar verði á skiptingu Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og VG á ráðherrastólum eftir kosningar.

Flest bendir til þess að þessir þrír flokkar muni halda samstarfi sínu áfram en ljóst er að einhverjar breytingar verða þó gerðar á skiptingu ráðherrastóla.

Í færslu á Facebook rýnir Gunnar Smári í kristalskúlúna og spáir því að VG missi forseta þingsins og færi sig úr heilbrigðisráðuneytinu í mennta- og menningarmálaráðuneytið.

„Sjálfstæðisflokkur missir eitt ráðuneyti en fær forseta þings í staðinn, missir utanríkis og sjávarútvegs en fær heilbrigðis í staðinn; Framsókn fær eitt auka ráðuneyti og áhrifameiri; samgönguráðuneyti SIJ breytt í innviða og loftslagsráðuneyti með umtalsverða sjóði úr að spila. Ég þekki ekki biðröðina hjá flokkunum eftir upphefð, en veðja á að Samherji vilji hafa ráðherra sjávarútvegs úr sínu kjördæmi. Annað er nokkuð eftir bókinni,“ segir Gunnar Smári.

Hann hafði ekki erindi sem erfiði í kosningunum um liðna helgi þó að flokkur hans hefði fengið á níunda þúsund atkvæði. Hann er ekki bjartsýnn á framhaldið hér á landi ef marka má færslu hans:

„Fram undan er tilflutningur valda, fjár, eigna og auðlinda frá almenningi til auðvaldsins, einkavæðing vegakerfis, heilbrigðiskerfis og gríðarlegur fjáraustur til fjármagns- og stórfyrirtækjaeigenda í nafni nýsköpunar, loftslags og stafrænnar byltingar á sama tíma og opinber grunnkerfi verða svelt. Kvótakerfið varið og braskvæðing húsnæðiskerfisins, völd verkalýðshreyfingar verða skert, fjölmiðlum stýrt með styrkjum og nokkur skref stigin í átt inn í alræði auðvalds.“

Svona verður ráðherraskipanin ef spá Gunnars Smára gengur upp:

Forsætis: Katrín Jakobsdóttir V
Fjármála: Bjarni Benediktsson D
Utanríkis: Lilja Alfreðsdóttur B
Innviða og loftslags: Sigurður Ingi Jóhannsson B
Dómsmála: Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir D
Sjávarútvegs- og landbúnaðar: Ingibjörg Ólöf Isaksen B
Iðnaðar, ferðamála og nýsköpunar: Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir D
Heilbrigðis: Guðlaugur Þór Þórðarson D
Félags- og barnamála: Ásmundur Einar Daðason
Menntamála: Svandís Svavarsdóttir V
Umhverfis: Guðmundur Ingi Guðbrandsson V
Forseti þings: Jón Gunnarsson D