Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins og ritari stjórnar Samtaka leigjenda, vandar Arionbanka ekki kveðjurnar í pistli á vef Vísis.
Gunnar Smári segir að kollegi hans, Guðmundur Hrafn Arngrímsson, sem í haust tók þátt í að endurreisa Samtök leigjenda hafi verið hent úr hinum fjölmenna hópi Leiga á Facebook. Segir hann að senditíkur Arionbanka hafi staðið þar á bak við eftir að dótturfyrirtæki bankans, Leiguskjól, náði hópnum undir sig.
„Guðmundur Hrafn hefur verið meðlimur í hópnum Leiga lengi og tekið þar þátt í umræðu. Sem skiljanlega snýst oft um okurverð, enda er það helsta einkenni markaðarins,“ segir Gunnar Smári í grein sinni og bætir við að Guðmundur Hrafn sé annálaður heiðursmaður í samskiptum og kurteis með afbrigðum.
Þrátt fyrir það hafi senditíkur Arionbanka nú hent honum úr hópnum og sett hann þar í bann.
„Ástæðan er að í gær settu Samtök leigjenda á Íslandi fram reiknivél viðmiðunarverðs leigu, sem sýndi hvert eðlilegt leiguverð og okurmörk væru á siðuðum leigumarkaði þar sem félagasamtök og þolinmótt fjármagn mótuðu markaðinn en ekki blóðsugur, okrarar og braskarar, sem njóta serstaks stuðnings stjórnvalda; ríkisstjórnar sem og sveitastjórna,“ segir hann og bætir við að svona reiknivélar séu í öllum siðuðum löndum mikilvægt tæki til að hemja okrið og innleiða siðaðri viðskiptahætti inn á húsnæðismarkað.
„Nema á Íslandi. Hér hefur okrurunum verið sigað á leigjendur. Og stjórnvöld hvetja þá áfram, taka skýra afstöðu um að þau séu með okrurum í liði en ekki leigjendum. Svona eru átökin í íslensku samfélagi,“ segir Gunnar Smári sem bætir við:
„Samfélag þar sem Arionbanki, okurstofnun sem hefur það að markmiði að soga 80 milljarða króna upp úr íslensku samfélagi og færa eigendum sínum, beitir afli sínu til að þagga niður í Guðmundi Hrafni Arngrímssyni, einstaklingi úti í bæ sem á enga sjóði, leigjenda sem berst fyrir mesta réttlætismáli okkar tíma, að leigjendur sameinist gegn því óréttlæti sem þeir eru beittir; samfélag sem lætur svona nokkuð viðgangast er illt samfélag og getur ekkert annað en versnað.“
Gunnar Smári segir að þeir sem vilja styðja Guðmund og leigjendur ættu að ganga úr þessari Facebook-grúppu. „Og þið líka ættuð að ganga í Samtök leigjenda til að styðja baráttu Guðmundar Hrafns og allra leigjenda,“ segir hann en hægt er að skrá sig í samtökin hér.