„Gunnar Smári, þetta er skelfileg innkoma í pólitík ef þú vilt láta taka mark á þér,“ segir athafnakonan Jónína Benediktsdóttir og beinir orðum sínum að Gunnari Smári Egilssyni, stofnanda Sósíalistaflokksins.
Jónína og Gunnar Smári höfðu skoðanaskipti í Facebook-hópi Sósíalistaflokksins í gær en tilefnið var færsla sem Gunnar Smári setti inn í hópinn eftir Silfrið á RÚV í gær. Þar tókust á Sigríður Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar.
Send fram þegar umræðan tapast?
„Sjálfstæðisflokkurinn metur að hann sé búinn að tapa umræðunni. Þegar það gerist er Sigríður Andersen send fram sem talsmaður flokksins. Hún var síðast í Silfrinu eftir mútu- og skattsvikaþáttinn um Samherja. Þá var hún send á vettvang til að rugla umræðuna. Þegar flokkurinn telur sig geta sótt stuðning, ekki bara skemma umræðuna og þvælast fyrir, þá er annað fólk sent á vettvang,“ sagði Gunnar Smári en þessi ummæli fóru ekki vel í Jónínu.
Jónína sagði að þetta væri ekki beint góð aðferð í pólitík ef maður vill láta taka mark á sér. „Það vill enginn vinna með þannig fólki sem ræðst í manninn með svona aðferðafræði sem þú notar hér í færslunni að ofan. Það er þér til vansa. Sjálfstæðisflokkurinn tapar aldrei í umræðunni fyrir það fyrsta og hún er bara mjög frambærileg kona þótt hún sé með aðrar skoðanir en við.“
Kaldur og súr grautur
Gunnar Smári svaraði þessu og sagðist ætla að láta Jónínu vita ef hann þarf leiðsögn í pólitík, skrifum og framkomu.
„En ef þú hefur hlustað þá stóð ekki steinn yfir steini hjá Sigríði, hún sagði að fólk gæti ekki endalaust beðið ríkið um hjálp en lagði svo inn beiðni fyrir hin fáu ríku, um að þau fengju skattalækkanir. Á ríkissjóð sem Sigríður vildi samt reka hallalausan. Og svo talaði hún um mikilvægi nýsköpunar einkafyrirtækja í heilbrigðisþjónustu (vísaði til deCode, fyrirtækis undir stjórn eins fárra yfirlýstra sósíalista á Íslandi) en minntist ekkert á nýsköpun opinberra starfsmanna hjá Landspítala sem fjölguðu gjörgæslurýmum fjórfalt og sköpuðu úr engu göngudeild covid. Þetta var ekki bara grautur, heldur viðbrenndur, staðinn, kaldur og súr.“
Ber ekki illan hug til Sigríðar
Jónína benti á að vinstrimenn stjórnuðu heilbrigðisráðuneytinu og spyr hvað hann hefði gert öðruvísi. „Veistu við erum mikið betur sett en flestir aðrir í heilbrigðismálum þótt við séum ekki sátt. Því miður er það staðreynd. Sennilega mannauðurinn sem er einstaklega fær. Ég hef nú aldrei verið talsmaður þess launamisréttis sem hér ríkir en það er mín pólitíska skoðun að allir ættu að lifa mannsæmandi lífi hér og að það sé ekki gerlegt nema að setja þak á hæstu laun. Það hefur enginn haft dug í sér að setja slík lög og ég fordæmi hálaunastefnu ríkisfyrirtækja en þar ráða líka vinstrimenn,“ sagði Jónína.
Gunnar Smári bætti við að hann hafi ekkert á móti Sigríði persónulega.
„Ég fyrirlít andmannúðarhyggju Sigríðar Andersen og ber ekki nokkra virðingu fyrir því stagli sem hún ber á borð eða því hlutverki sem hún leikur fyrir auðvaldsklíkuna. En ég ber alls ekki illan hug til Sigríðar, finnst hún skemmtilegur karakter og bera vissan svip af föður sínum, sem ég kynntist ungur maður og fannst bæði frábærlega fyndinn og ljúfur karl. Þótt við höfum ekki verið sammála um neitt í pólitík.“