Gunnar Smári og Hall­grímur rök­ræða: „Ertu sturlaður?“ – „Er ekki í lagi með þig?“

Gunnar Smári Egils­son og Hall­grímur Helga­son skiptust á skoðunum á Face­book-síðu þess fyrr­nefnda í dag en til­efnið var for­seta­kosningarnar hér á landi.

Gunnar Smári sagði í færslu sem hann skrifaði að hann fyndi engan hvata hjá sér til að fara á kjör­stað og kjósa Guðna Th. og enn síður Guð­mund Frank­lín.

„Guðni Th. er í­halds­maður af þeirri tegund sem undan­farið hefur kallað sig hina frjáls­lynda miðja, af­staða sem ein­kennist á af­neitun á stétta­mun og fé­lags­legu ó­rétt­læti, en rétt­lætir varð­stöðu sína um ó­breytt á­stand með því að eini val­kosturinn sé öfga-hægrið. Sem Guð­mundur Frank­lín til­heyrir. Frá sjónar­hóli þessarar í­hald­smiðju eru kosningar hér eins og frönsku for­seta­kosningarnar; hvort viltu Macron eða Le Pen? Eða þær banda­rísku; hvort viltu Biden eða Trump?“

Færsla Gunnars Smára var þó nokkuð lengri en það sem Hall­grímur Helga­son staldraði við var þetta:

„Hvort viltu Biden eða Trump? Í al­vöru? Frekar þann versta en þann næst­besta? Ein­mitt af þessum á­stæðum var Trump kosinn,“ segir Hall­grímur.

Gunnar Smári svarar og segir:

„Ég veit þú trúir þessu; að þau sem ekki fallast á að Hillary, Biden, Macron (eða Logi) eða aðrir full­trúar hinnar svo­kölluðu frjáls­lyndu miðju séu eini val­kosturinn gegn fas­isma, að þau sem ekki fallast á þessa heimsku séu í raun and­stæðingar ykkar nr. eitt, séu með fas­istum í liði; að þau sem ekki kusu Hillary hafi búið til Trump (þegar hið rétta er að Hillary bjó til Trump). Það er í raun til­gangs­laust að ræða þetta við þig, og ykkur; á­líka til­gangs­laust og að ræða við ykkur um Evrópu og evru.“

Hall­grímur bendir Gunnari Smára á að um 120 þúsund manns séu nú látnir í Banda­ríkjunum vegna CO­VID. „Hve­nær teljast menn stríðs­glæpa­menn? Eftir 100 eða 1000?“ Eitt­hvað fór þessi at­huga­semd öfugt ofan í Gunnar Smári sem sagði:

„Ertu sturlaður? Ertu að saka mig um að hafa drepið 120 þúsund manns? Er ekkert vit þarna á miðjunni?“

Hall­grímur spyr á móti: „Er ekki í lagi með þig elsku vin?“ og bendir honum á að hann sé að tala um Donald Trump en ekki Gunnar Smára sjálfan. Gunnar Smári leyfði Hall­grími ekki að sleppa svo auð­veld­lega og sagði:

„Bíddu, ert þú ekki að tengja látna af co­vid við höfnun mína á því að valið sé á milli Hillary eða Trump, og að þau sem ekki kusu Hillary séu með­sek? Þú ert að halda því fram. Þú hefur ekki meiri sóma­kennd en þetta.“

Hall­grímur segist að­eins hafa haldið því fram að um sé að ræða hættu­legt sjónar­mið. „Að leyfa hinum versta að vaða uppi frekar en að sætta sig við þann næst­besta. Hættu­legt sjónar­mið,“ segir hann.

Gunnar Smári segir að Hall­grímur ætti að láta það vera að mála Guð­mund Frank­lín sem raun­veru­lega ógn. „Þótt þú viljir hræða fólk til miðju­moðs með honum. Þetta sýnir að­eins að þið á miðjunni lifið innan stjórn­mála sem eru fyrst og síðast í­myndun, eiga ekkert skylt við lífs­bar­áttu fólks lengur.“

Hall­grímur lagði ekki fleiri orð í belg en sendi Gunnari Smára broskarl með hjörtum.