Gunnar Smári nefnir eitt sem Donald Trump hefur gert sem ríkis­stjórn Katrínar hefur ekki gert

Gunnar Smári Egils­son, stofnandi Sósíal­ista­flokksins, bendir á að Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hafi á­kveðið að banna leigu­sölum í Banda­ríkjunum að bera út leigj­endur það sem eftir lifir ársins.

„Ríkis­stjórn Katrínar Jakobs­dóttur hefur ... ekki gert neitt til að verja leigj­endur, sem til­heyra hópi hinna tekju­lægstu og sem margir eru meðal þeirra sem misst hafa vinnuna vegna kóróna­far­aldursins,“ segir Gunnar Smári á Face­book.

Ríkis­stjórn Donalds Trump til­kynnti á þriðju­dag að leigu­sölum yrði meinað að bera út leigj­endur út þetta ár. Á þetta við um ein­stak­linga sem eru í þeirri stöðu að geta ekki borgað leiguna. Þeir leigu­salar sem brjóta gegn þessu banni gætu átt von á refsingu.

Um­rætt bann kemur eftir til­lögu frá Mið­stöð sjúk­dóma­varna og for­varna í Banda­ríkjunum, CDC, í ágúst síðast­liðnum. Er það gert til að sporna gegn frekari út­breiðslu kórónu­veirunnar, ein­staklingar sem missa heimili sín þurfa þannig ekki að fara á ver­gang sem gæti aukið hættuna á út­breiðslu veirunnar.