Gunnar Smári Egilsson, fjölmiðlamaður og stofnandi Sósíalistaflokksins, er kominn með hugmynd fyrir Vesturport um næstu Verbúðarseríu. Áttundi og síðasti þáttur Verbúðarinnar var sýndur á RÚV í gærkvöldi og er óhætt að segja að þættirnir hafi fallið vel í kramið hjá fólki.
„Eins og í glæpaseríum á borð við Narcos ætti næsta sería af Verbúðinni að fylgja Samherjamönnum. Eftir kaupin á Guðbjörginni fór Samherji tímabundið á markað og hreinsaði upp fyrirtæki víða um land, komst líka yfir Síldarvinnsluna sem sósíalistar í Neskaupstað höfðu byggt upp,“ sagði Gunnar Smári á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi.
Hann bætir við að Þorsteinn Már hafi síðar farið í bankabrask og ásamt öðrum verið einn helsti gerandi hrunsins.
„Í millitíðinni keypti hann fyrirtæki í Færeyjum, austurhluta Þýskalands, í Noregi og víðar fyrir arðinn af auðlindinni, kom sér um digrum sjóðum í aflöndum, einkum á Kýpur, og fór síðar til Namibíu, mútaði þar ráðamönnum eins og hann hafði áður gert víða um heim. Og eignaðist Eimskip og allskonar. Í raun eru glæpur og svik Þorsteins Más svo stórkostleg að næstu tvær seríu ættu að fylgja honum,“ segir Gunnar Smári og er ómyrkur í máli.