Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins og fjölmiðlamaður til margra ára, varpaði fram ansi áhugaverðri kenningu á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi.
Þar gerir hann leka á minnisblaði Þórólfs Guðnasonar að umtalsefni en það vakti athygli í gær þegar fjölmiðlar sögðu frá því að Þórólfur hefði lagt til 20 manna samkomubann. Þórólfur skilaði minnisblaði sínu til Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra í gær og stóð til að það yrði rætt á ríkisstjórnarfundi í dag áður en innihald þess yrði gert opinbert.
Það hefur að minnsta kosti verið venjan hingað til og Þórólfur haldið minnisblaðinu þétt að sér og gefið neitt upp um innihaldið. Það gerðist svo í gær að innihaldi þess var lekið í fjölmiðla.
Gunnar Smári veltir þessari spurningu fyrir sér um hver það var sem lak minnisblaðinu:
„Svar: Heilbrigðisráðuneytið, líklega aðstoðarmaður ráðherra. Þetta er þekkt aðferð til að færa til ábyrgð og brjóta upp slæmar fréttir. Án leka hefði Willum mætt á morgun og tilkynnt um 30 manna fjöldatakmarkanir og 300 manna hólf skilgreind á fjöldasamkomum og verið vondi kallinn. Með leka mun Willum koma fram á morgun og tilkynna að hann hafi ákveðið að setja á mildari takmarkanir en Þórólfur lagði til; 30 manna fjöldatakmarkanir og 300 manna hólf skilgreind á fjöldasamkomum. Þá er Þórólfur vondi kallinn en Willum sá mildi. Þórólfur hafði engan hag af því að leka minnisblaðinu, aðeins Willum. Framsóknarstjórnmál snúast aldrei um innihald (nema hvað markmiðið er að auga mennina sem rændu eignum samvinnuhreyfingarinnar) en ætíð um yfirborðsmennsku.“
Þá er bara að sjá hvort Gunnar Smári hafi rétt fyrir sér en búist er við því að nýjar samkomutakmarkanir verði kynntar fyrir hádegi, eftir fund ríkisstjórnarinnar.