Gunnar Smári Egilsson, formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokksins, líkir ríkisstjórninni við fólk sem býður öðru fólki í mat án þess að hafa eldað eða keypt í matinn. Hann segir þetta vegna umræðu um fjölgun flóttafólks hérlendis, en hann telur ríkisstjórnina ekki hafa undirbúið móttöku þess nægilega vel.
Gunnar Smári var gestur í Silfrinu í morgun en þar sagði hann Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra, og Sjálfstæðisflokkinn reyna að glæpavæða flóttafólk með tilfinningalegri og siðlausri umræðu.
„Flóttamönnum er að fjölga vegna Úkraínustríðsins og ákvarðana þessar ríkisstjórnar um að veita fólki frá Venesúela samskonar vernd og fólki frá Úkraínu, og þegar stjórnvöld reyndu að breyta því þá felldi kærunefndin það í burtu,“ sagði Gunnar Smári.
Hann segir 75 prósent flóttamanna vera frá þessum tveimur löndum. „Það er náttúrulega mikið álag af því en Jón og Sjálfstæðisflokkurinn talar eins og vandinn sé að koma frá Albaníu með fölsuð vegabréf. Það er verið að glæpavæða flóttafólk.“
Hann segir dómsmálaráðherra kynna málið sem neyðarástand vegna þess að grunnkerfi samfélagsins séu að brotna og segir: „Það er rétt, þau eru að brotna. Þau eru að brotna vegna áratuga vanrækslu. Það var vandamál í heilbrigðiskerfinu, menntakerfinu og húsnæðiskerfinu áður en flóttafólki fjölgaði.“
Gunnar Smári líkir ríkisstjórninni við fólki sem býður öðru fólki í mat, en hefur ekki eldað og ekki keypt í matinn.
„Vandamálið sem við stöndum frammi fyrir, og flóttafólkið, er að ríkisstjórnin bauð fólki frá Úkraínu og Venesúela að koma hingað, en gerði ekkert til þess. Þau eru eins og fólk sem býður fólki í mat, en það er ekki eldað og ekki keypt í matinn.“