Gunnar Smári kominn með nóg af grímuskyldunni: „Er þetta ekki orðið gott?“

„Hvenær verður grímuskyldan aflögð og samkomutakmarkanir einnig? Er þetta ekki orðið gott?“

Þessari spurningu varpar Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins, fram á Facebook-síðu sinni. Hann segist hafa gengið frá Smiðjustíg upp í Bolholt í gærkvöldi og mætt í það minnsta níu einstaklingum, allt ungt fólk, sem var með grímur utandyra.

„Hver er tilgangurinn? Þurfa sóttvarnaryfirvöld ekki að stíga fram að andmæla sóttvörnum umfram nauðsyn? Það er óhollt að ganga með grímur án ástæðu, skerðir loftgæði og getur valdið sveppamyndun við húð, fráleitur sóðaskapur í raun.“

Gunnar Smári bendir á að ekkert smit hafi greinst úti í samfélaginu dögum saman en samt séu sóttvarnir hér eins og farsóttin geisi taumlaus.

„Ef almenningur hefur útrýmt veirunni innanlands og ef varnir við landamærin eru öflugar, verður niðurstaðan að vera frelsi í almennu lífi, aflagt bann við fundahöldum og samkomum og að grímuskyldu verði hætt. Ég er ekki að biðja um þúsundasta viðtalið við forkólf ferðaiðnaðarins um fyrirsjáanleika, heldur skýr skilaboð frá sóttvarnaryfirvöldum um hvað gerist ef almenningi hefur tekist að útrýma veirunni innanlands. Einn dagur í viðbót án smita og þá allt frjálst? Tveir dagar? Þrír? Hvenær er nóg nóg?“