Gunnar Smári hraunar yfir Sigmar Guðmunds: „Sturlaður nýfrjálshyggjuflokkur“

Gunnar Smári Egilsson, leiðtogi Sósíalistaflokks Íslands, vandar fyrrum sjónvarpsmanninum og núverandi þingmanni Viðreisnar, Sigmari Guðmundssyni, ekki kveðjurnar í færslu inni á hópi Sósíalistaflokksins á Facebook í dag.

Tilefnið var Kastljósviðtal við Sigmar – þætti sem hann stýrði á árum áður – þar sem Gunnar Smári segir hann hafa verið að boða niðurskurð á vegum ríkisins vegna hárrar skuldastöðu.

Sigmar er eins og sakir standa í hálfgerðum limbói en enn er óráðið hvernig staðið verður að málum í kjölfar kosningaklúðursins í Norðvesturkjördæmi.

Enn er allt í uppnámi heilum átta vikum eftir kosningar, nokkur fjöldi frambjóðenda vita enn ekki fyllilega hvort þau taki endanlega sæti á Alþingi eða sitji heima hjá sér en staðan hefur áhrif á alls tíu einstaklinga – þar á meðal Sigmar.

Líklegast er að Alþingi kjósi á milli þess að láta seinni talninguna í Norðvesturkjördæmi gilda, eða þá ekki sem þýðir að kjósa þurfi aftur í kjördæminu. Allar líkur eru taldar á að seinni talningin verði samþykkt og því verði Alþingi eins og það er skipað í dag alveg óbreytt.

Þar með myndi Sigmar gleðjast, en hann gleðst eflaust ekki yfir færslu Gunnars Smára.

Hún hljóðar svo: „Sigmar Guðmundsson er í Kastljósinu að boða niðurskurð ríkisútgjalda vegna mikilla skulda ríkissjóðs, fullyrðir að ríkissjóður hafi staðið illa fyrir cóvid og afleitlega núna. Viðreisn er svo sturlaður nýfrjálshyggjuflokkur að jafnvel þegar allar dómkirkjur nýfrjálshyggjunnar hafa slakað á rétttrúnaðinum, þá herðist Viðreisnarfólkið bara,“ segir Gunnar Smári.

Hann endar á því að kenna Sigmari hvernig á að haga sér í sjónvarpsútsendingu, eitthvað sem Gunnar hefði ef til vill mátt taka til sín fyrir Alþingiskosningarnar: „Svo mætti Sigmar hætta að grípa fram í fyrir konunum í þættinum.“