Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins, skellti sér í bíó á dögunum og sá nýjustu James Bond-myndina sem margir hafa beðið með mikilli eftirvæntingu. Myndin, No Time to Die, er síðasta myndin sem skartar Daniel Craig í hlutverki njósnara hennar hátignar og hefur hún hlotið ágæta dóma gagnrýnenda.
En Gunnar Smári Egilsson er enginn aðdáandi No Time to Die eins og glögglega má lesa í færslu sem hann skrifaði á Facebook-síðu sína í kvöld.
„Ég sá nýju Bond-myndina og hún gekk eiginlega frá mér, þetta var eins og að horfa á fólk reyna að kreista vatn úr steini. Það er ekkert eftir í þessari sögu eða persónum, ekkert sem er ekki löngu lekið burt og gufað upp.“
Gunnar Smári segist í leiðindum sínum hafa velt fyrir sér hvað Daniel Craig væri gamall þegar myndin var tekin upp.
„Hann var 51 árs. Ári yngri en Roger Moore var þegar For Your Eyes Only var tekin upp. Sir Moore átti eftir að gera tvær myndir í viðbót, Octopussy og A View to a Kill, sem var tekin upp þegar hann var 57 ára.“
Gunnar Smári heldur áfram:
„Sean Connery var 31 árs þegar tökur á Dr. No byrjuðu í ársbyrjun 1962 og lék svo James Bond í fimm myndum í striklotu þar til hann var orðinn 36 ára, níu árum yngri en þegar Roger Moore byrjaði að leika þessa persónu sex árum síðar. En þarna á sjöunda áratugnum þótt 36 ár full gamalt og hinn þrítugi George Lazenby var ráðinn. Hann þótti ekki virka og Connery var fenginn til að leika Bond aftur, varð fertugur meðan á tökum stóð. Connery lék Bond reyndar enn einu sinni, var 52 ára við tökur á Never Say Never Again árið 1983.“
Gunnar Smári bendir svo á að þeir Timothy Dalton og Pierce Brosnan hafi verið 41 árs þegar tökur hófust á þeirra fyrstu mynd en Daniel Craig varð 38 ára við tökur á sinni fyrstu mynd.
„Hvað segir þetta okkur? Ekki neitt. Kannski að ef George Lazenby hefði fest sig í sessi og Sean Connery ekki verið sóttur aftur; þá væri James Bond kannski yngri í dag. Fyrst bætti Bond við sig tíu árum hjá Sean Connery og svo öðrum tíu í meðförum Roger Moore og rúmlega það.“
Gunnar Smári heldur svo áfram að tölfræðiupptalningu sinni og þylur upp aldur ástkvenna Bond – vissulega ekki mjög áhugavert.
„Ef ykkur finnst þessi status óáhugaverður þá ættuð þið að prufa að horfa á nýju Bond-myndina. Hún er leiðinlegri en þetta,“ segir hann að lokum.