„Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt að ríkidæmi takmarkar getu fólks til að finna til samkenndar með þeim sem standa ekki eins vel. Hin ríku eru ekki endilega vont fólk að upplagi, en ríkidæmið gerir það vont.“
Þetta segir Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins, á Facebook-síðu flokksins.
Gunnar Smári gerði þar að umtalsefni ummæli Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra á Alþingi á þriðjudag, sem Kjarninn fjallaði meðal annars um, þar sem hann sagði að Íslendingar ættu að vera stoltir af því hversu ótrúlega öflugt almannatryggingakerfi við höfum byggt upp til að styðja við einstaklinga sem ekki hafa náð að leggja til hliðar í lífeyrissparnað.
Gunnar Smári telur að ríkidæmi geri fólk vont og er þeirrar skoðunar að auður sem gengur í erfiðir geri síðan hverja kynslóð enn vanhæfari til að setja sig í spor annarra. „Einkum þeirra sem standa illa fjárhagslega og þurfa á hjálp að halda,“ segir hann meðal annars.
Gunnar Smári heldur áfram:
„Af þessum sökum má vera að þótt Bjarni sé með meðalgreind, þá er hann þannig uppalinn og býr við þær aðstæður að honum er nánast ómögulegt að skilja samfélagið sem hann tilheyrir, hann nær ekki að tengja við stóra hluta þess. Hafið þetta í huga þegar þið veljið ykkur næst fulltrúa til að fara með almannavald; sleppið því að velja þau sem eru eiginlega ófær um að fara með slíkt vald sökum getuleysis til samkenndar með öðru fólki.“