Gunnar Smári gerir upp árin innan SÁÁ: „Aldrei orðið fyrir eins miklum óheiðarleika“

Allt logar í illdeilum innan SÁÁ eftir að formaður samtakanna varð uppvís að vændiskaupum og formannsframbjóðandi dró framboð sitt til baka eftir tölvupóst frá öðrum fyrrverandi formanni sem talið er að gangi erinda annars fyrrverandi formanns.

Gunnar Smári Egilsson var formaður samtakanna á tímabili en hefur ekki dregist inn í átökin nú. Hann sagðist styðja framboð Þóru Kristínar Ásgeirsdóttur áður en hún dró það til baka.

Gunnar Smári gerir upp sinn tíma sem formaður í athugasemd á Facebook:

„Ég var formaður þarna í tvö ár, við öfluðum mikilla nýrra tekna og forðuðum SÁÁ frá niðurskurði eftir Hrun, breikkuðum ásýnd samtakanna, virkjuðum almennt félagsfólks til starfa, byggðum brú yfir til stofnana og félaga sem fyrri stjórn hafði staðið í tilgangslausum deilum við,“ segir hann.

„En þessi sama klíka og nú ræðst á Þóru Kristínu, af öllu fólki, snerist gegn mér og ég yfirgaf þetta partí. Ég hef aldrei orðið fyrir eins miklum óheiðarleika og frá þessu fólki, og hef ég þó oft staðið í ströngu víða. Hið hatrama skrifstofufólk sem taldi sig eiga Eflingu eru hálfgerðir kettlingar í samanburði.“