Gunnar Smári Egilsson, fjölmiðlamaður og einn af stofnendum Sósíalistaflokksins, segist ekki vita hvort andlitsgrímur haldi kórónuveirunni frá. Það sé þó deginum ljósara að þær halda fólki frá.
„Stutt félagsleg vettvangskönnun sýnir að þegar ég er með grímu virðir fólk frekar tveggja metra regluna en ef ég er andlitsber. Kannski heldur fólk að ég sé smitaður, verandi með grímu. Kannski er það bara minnt á að svo geti verið. Alla vega; grímur eru vörn gegn fólki (sem smitar og gæti smitast),“ segir Gunnar Smári.
Nokkuð hefur verið fjallað um að fólk virði illa tveggja metra regluna. Á þetta til dæmis við um verslanir og skemmst er að minnast tilkynningar lögreglu sem kannaði ástandið á skemmtistöðum borgarinnar að kvöldi laugardags. Mjög víða höfðu engar ráðstafanir verið gerðar til að tryggja tveggja metra fjarlægð milli ótengdra aðila. Það er því aldrei að vita nema hugmynd Gunnars Smára geti gert gagn fyrir þá sem vilja aðrir virði nálægðarmörk.
Gunnar Smári hefur þó tekið eftir einum galla varðandi andlitsgrímur og endar færslu sína á Facebook á þessum orðum: „Það er ekki hægt að nota farsíma með grímu, síminn hættir að þekkja þig og opnast ekki. Þú þarft linnulaust að lemja inn lykilorðið til að opna símann.“