Björn Ingi Hrafnsson ritstjóri Viljans furðar sig á afsögn Sólveigar Önnu Jónsdóttur og Viðars Þorsteinssonar úr stjórn Eflingar.
„Ég skil ekkert í þessu Eflingarmáli fremur en aðrir, en veit þó að Sólveig Anna, Viðar Þorsteins og Gunnar Smári og félagar þeirra í nýju sósíalísku verkalýðsforystunni hafa verið óþreytandi að segja okkur að það sé starfsfólkið sem eigi fremur að ráða för en stjórnendurnir; vinnuaflið eigi að fá aukin völd yfir atvinnutækjunum og berjast gegn hverskyns ógnarstjórn að ofan,“ segir Björn Ingi í færslu á Facebokk.
„Trúnaðarmenn séu heilagir á hverjum vinnustað og lýðræðislegan rétt starfsfólks eigi að styrkja og efla. Var svo ætlunin eftir alltsaman í Eflingu að stilla „vinnuaflinu“ upp við vegg og krefjast skilyrðislausrar hlýðni? Og ráðast á trúnaðarmanninn? Annað hvort eruð þið með okkur eða á móti okkur? Var ætlunin að beita ógnarstjórn innan félagsins til að berjast við ógnarstjórn annars staðar í samfélaginu? Skilur þetta einhver?“
Gunnar Smári Egilsson Sósíalistaforingi er ekki sáttur við að vera bendlaður við málið:
„Hvers vegna ert þú að blanda mér inn í þessa frásögn þína? Finnst þér að ég eigi heima þarna með formanni og framkvæmdastjóra?,“ spyr hann og bætir við: „Ég hef engin afskipti haft af Eflingu síðan ég aðstoðaði B-listann í kosningum fyrir bráðum fjórum árum, hef ekki unnið fyrir Eflingu hvorki sem launamaður né verktaki, sit þar enga fundi, hvorki starfsmannafundi né neina aðra fundi, og tengist ekki starfsemi þessa félags. Einu sinni hélt ég tölu á ráðstefnu á vegum Eflingar um nauðsyn lýðræðisvæðingar verkalýðsfélaga til að vinna gegn valdi skrifstofunnar og byggja upp vald almennra félaga.“
„Það er nýtt að þú viljir ekki bendla við forystuna í Eflingu,“ svarar Björn Ingi. „Enda talaði ég um nýju sósíalísku verkalýðsforystuna með hliðsjón af þinum eigin orðum um lykilhlutverk flokksins i þeim efnum.“
Gunnar Smári segist hafa misslesið hann: „Hann virðist fjalla um starfsmannamál á skrifstofu félagsins Eflingar. Ég hef aldrei tjáð mig um þau.“