Gunnar Smári Egilsson, fyrrverandi fjölmiðlamaður og stofnandi Sósíalistaflokksins, segist hafa orðið dapur eftir að hafa hlustað á frásögn Birgittu Jónsdóttur, fyrrverandi þingkonu Pírata, í Síðdegisútvarpinu á dögunum.
„Er það virkilega svo að hennar framlag til samfélagsins sé ekki meira metið en svo að enginn þykist þurfa á starfskröftum hennar að halda?,“ segir Gunnar Smári í Facebook-hópi Sósíalistaflokksins.
!Ég ætla ekki að nefna þær kveðjur sem forysta Pírata sendu henni á sínum tíma, en er það virkilega svo að þau sem hafa barist fyrir bættu samfélagi séu máluð sem umdeildar manneskjur (lesist: eitthvað sem Sjálfstæðisflokknum stendur ógn af) og séu í kjölfarið nánast í felum, eins það hafi gert eitthvað af sér? Með því að stíga á tær valdsins. Þetta er ljóta samfélagið.“
Í viðtalinu kom fram að Birgitta hefði tekið meðvitaða ákvörðun um að draga sig algjörlega út úr sviðsljósinu. Hún kveðst í raun hafa unnið yfir sig og „krassað algjörlega“ og undanfarin misseri hafi hún verið í felum heima hjá sér þar em hún hefur byggt upp andlegt þrek.
Þá sagðist Birgitta hafa lélegt sjálfsmat sem hún þurfi að vinna með og sú mynd sem Íslendingar hafi af henni lýsi henni ekki vel.
„Það sem gerist þegar maður verður opinber persóna er að þá er búin til mynd af manni sem maður er ekki endilega, og myndin af mér var rosalega skökk miðað við hver ég í rauninni er.“