„Fyrir 1960 gátu flokkar sloppið með skrekkinn frá samstarfi við íhaldið en eftir því sem nær dregur okkar tíma verður refsing kjósenda ákveðnari, flokkar eiga það á hættu að þurrkast út,“ segir Gunnar Smári Egilsson, einn af stofnendum Sósíalistaflokksins, í áhugaverðum pistli sem hann birti á Facebook-síðu flokksins í gær.
Þar fór hann yfir afdrif þeirra flokka sem valið hafa að fara í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum á undanförnum árum og áratugum. Hann segir að ástæða þess að þeim flokkum sem leggja í stjórnarsamstarf við Sjálfstæðisflokkinn farnast illa í næstu kosningum er að svona samstarf sé ekki það sem kjósendur þessara flokka vilja. „Ef þeir vildu Sjálfstæðisflokkinn í ríkisstjórn myndu þeir kjósa hann beint,“ segir hann.
Gunnar Smári fer yfir kosningar undanfarinna áratuga í nokkuð löngu máli með áherslu á örlög þeirra flokka sem ganga til stjórnarsamstarfs með Sjálfstæðisflokknum.
Nýjasta dæmið er af VG og Framsókn sem mynduðu ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum árið 2017. Samanlagt fylgi þessara flokka í þeim kosningum var 27,6% en ef gengið yrði til kosninga nú væri samanlagt fylgi þeirra 15,2%, samkvæmt nýjustu könnun MMR. Tæplega helmingur kjósenda hafa þannig snúið baki við flokkunum.
Gunnar Smári nefnir fleiri dæmi:
„Þegar Viðreisn og Björt framtíð fóru í stjórnarsamstarf með Sjálfstæðisflokknum eftir kosningarnar 2016 voru flokkarnir samanlagt með 17,7% atkvæða. Þegar næst var gengið til kosninga fengu flokkarnir 7,9% atkvæða. 55% kjósenda flokkanna höfðu snúið baki við flokkunum.
Þegar Framsóknarflokkurinn fór í stjórnarsamstarf með Sjálfstæðisflokknum 2013 var flokkurinn með 22,4% atkvæða en þegar næst var gengið til kosninga fékk flokkurinn 11,5% atkvæða. 53% kjósenda flokksins höfðu snúið baki við honum.“
Hann nefnir svo að Framsóknarflokkurinn hafi verið með 23,3% fylgi þegar hann gekk til samstarfs með Sjálfstæðisflokknum árið 1995. Þegar sú stjórn féll árið 2007 fékk flokkurinn 11,7% atkvæða. Um helmingur kjósenda hafði snúið baki við flokknum. Gunnar Smári nefnir fleiri eldri dæmi í pistli sínum og segir að niðurstaðan sé sú að „bölvun Sjálfstæðisflokksins“ hafi vaxið með árunum. Upp úr miðri síðustu öld hafi flokkar getað sloppið með skrekkinn frá samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn en eftir því sem liðið hefur á hefur refsing kjósenda orðið ákveðnari.
„Þetta vita allir, líka Katrín Jakobsdóttir formaður VG. Hún telur sig hins vegar geta sigrað söguna og afstöðu kjósenda, með stjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn hefur hún skorað skynsemina á hólm.“