Gunnar Smári boðar róttæka lífstílsbreytingu: „Ég veit ekki hvers vegna ég er að segja ykkur þetta“

„Ég veit ekki hvers vegna ég er að segja ykkur þetta, er bara að hugsa upphátt,“ segir Gunnar Smári Egilsson, fyrrverandi fjölmiðlamaður og stofnandi Sósíalistaflokksins, á Facebook-síðu sinni. Hann boðar þar lífsstílsbreytingu sem margir myndu kalla róttæka.

„Ég er að hugsa um að hætta að drekka kaffi. Ég byrjað að drekka kaffi fimm ára með mikilli mjólk og sykri en hef síðustu hálfa öldina drukkið þetta svart og sykurlaust. Um tíma drakk ég tíu bolla á dag en undanfarin ár varla meira en tvo,“ segir Gunnar Smári í færslu sinni og heldur áfram:

„Sá fyrri er reyndar ansi stór, eins og sexfaldur espresso. Um tíma skipti ég yfir í te, fannst það fjölbreytilegra. Kaffi er í raun fádæma minimalísk veröld; tvær baunir, misbrennt og nokkrar aðferðir við uppáhellingu. Það þarf nánast einhverfu til að hafa áhuga á kaffi. Samt hef ég drukkið líklega um 14 þúsund lítra af þessum sviplitla drykk. Mér finnst kaffi best í ís. Kannski vegna þess að það minnir mig á kaffið eins og ég vildi hafa það þegar ég var fimm ára, með mjólk og dísætt.“