Gunnar Smári Egilsson, formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokksins, segir það ekki rétt að hann komi Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formanni Eflingar og flokkssystur sinni ekki til varnar í þeim aðgerðum sem hún stendur nú í í Eflingu.
Þetta kemur fram á Facebook hópi Sósíalista. Þar er Gunnar spurður út í pistil Reynis Traustasonar af Mannlífi, þar sem hann segir það vekja athygli að Gunnar Smári komi Sólveigu ekki til varnar nú þegar hún stendur í brottrekstri launafólks hjá Eflingu.
Reynir segir að þá hafi verið eftir því tekið á dögunum að ýfingar voru á Facebook milli Sólveigar Önnu og Öldu Lóu Leifsdóttur, ljósmyndara og eiginkonu Gunnars Smára. „Margt bendir því til þess að vik sé á milli vina og leiðir hafi skilið …“ skrifar Reynir.
Gunnar Smári er spurður í Facebook hópi Sósíalista: „Er þetta rétt?“ Gunnar svaraði tuttugu mínútum síðar: „Nei.“