Alþýðufélagið hefur stofnað fjölmiðlafyrirtækið Samstöðina ehf. en félagið hefur haldið úti dagskrá á samnefndri vefrás frá 2020. Þetta kemur framí frétt mbl.is.
Formaður stjórnar er Gunnar Smári Egilsson, formaður Sósíalistaflokks Íslands. Gunnar Smári starfaði áður sem fjölmiðlamaður og hefur komið að rekstri nokkurra fjölmiðlafyrirtækja, meðal annars Dagsbrúnar og Fréttatímans sem varð gjaldþrota sumarið 2017.
Þegar Fréttatíminn fór á hausinn var greint frá því að útgáfufélagið skuldaði starfsmönnum rúmlega 5 milljónir króna í laun og um 20 milljónir króna í launatengd gjöld. Þá fengu verktakar ekki greidd laun í nokkra mánuði.
Í Lögbirtingablaðinu kemur fram að tilgangur Samstöðvarinnar sé að „standa fyrir og útvarpa fundum um samfélagsmál, bæði í raunheimi og netheimi, og ýta undir umræðu í samfélaginu með þáttagerð, skrifum og hvers konar umfjöllun.“
Í stjórn Alþýðufélagsins eru, ásamt Gunnari Smára, meðal annars Halla Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri ASÍ og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir upplýsingafulltrúi Íslenskrar erfðagreiningar og fv. ritstjóri Smugunnar (vefrits VG). Þá eru þær Ólína K. Þorvarðardóttir fv. þingmaður og Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins í varastjórn.