Gunnar Alexander Ólafsson, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, leggur til verðhækkun á bílastæðunum við Keflavíkurflugvöll.
Þetta kemur fram í vangaveltu sem hann birti á Twitter, en þar bendir hann á að það hafi kostað hann minni pening að bóka bílastæði við völlin í tvær vikur heldur en það kostar fyrir þrjá að fara með flugrútu á völlinn fram og til baka.
Bílastæðabókunin kostaði samkvæmt honum 18.500 krónur en flugrútan 21.000 krónur.
„Til umhugsunar. Ég var að bóka bílastæði við KEF flugvöll í 2 vikur. Það kostar 18.500 kr. Við erum þrjú að fara. Ef við hefðum keypt miða með flugrútunni fram og tilbaka hefði það kostað okkur 21.000 kr. Of lítill verðmunur. Hækka verð á bílastæðum við KEF!“