Gunnar orðlaus: „Sjá ekki eftir neinu meira en að hafa borgað í lífeyrissjóð“

„Maður er að sjá fólk í kringum sig fara á eftirlaun og á ekki aukatekið orð yfir framkomu ríkisins,“ segir Gunnar Ásgeir Gunnarsson, verkstjóri hjá Steypustöðinni í Borgarnesi, í áhugaverðri grein sem birtist á vef Lifðu núna á dögunum.

Gunnar Ásgeir segir erfitt að horfa upp á hvernig komið er fram við eldra fólkið í landinu og leggur hann fram fé í Málsóknarsjóð Gráa hersins fyrir málaferli á hendur ríkinu vegna skerðinga í almannatryggingakerfinu.

„Við verðum að hjálpast að í þessu, ég vona bara að dómsmálið vinnist og þetta klárist áður en ég fer á eftirlaun sem er náttúrulega ákveðin eigingirni hjá mér“, segir Gunnar sem er þeirrar skoðunar að kerfið eigi ekki að vera þannig að fólk á eftirlaunum geti ekkert unnið eða gert – allt sé tekið af því.

Gunnar segir að margt sé óréttlátt í samfélaginu en ekkert særir jafnréttiskennd hans meira en það hvernig komið er fram við eftirlaunafólk í landinu.

„Ég tala nú ekki um þegar það fer inn á hjúkrunarheimili. Þá eru allar tekjur teknar af fólki, nema rétt rúmar  90.000 krónur á mánuði. Af því fé, þarf fólk að borga meðal annars fasteignagjöld og hússjóð af íbúðunum sínum. Það verður ekkert eftir, menn eiga ekki einu sinni fyrir jólagjöfum handa barnabörnunum. Stjórnvöld þurfa að átta sig á að þetta gengur ekki,“ segir hann og bætir við að búið sé að gera hans kynslóð allt að því eignalausa með verðtryggingunni.

„Mín kynslóð hefur stritað við að borga af lánum alla tíð, lánin hafa bara hækkað, hækkað og hækkað. Ég þekki fólk sem lenti tvisvar í hruni. Fyrst í Sigtúnshópnum og síðan í bankahruninu. Svo er verið að reyna ná sér á strik aftur. Mann langar kannski um sjötugt að geta leyft sér að fara til Spánar og slaka á. Fólk sættir sig ekki við að vera bundið á klafa hérna og geta ekki leyft sér nokkurn skapaðan hlut.  Ég á vinnufélaga sem eru farnir að skoða stöðu sína þegar þeir fara á eftirlaun. Kerfið er svo afspyrnuvitlaust að þeir sjá ekki eftir neinu meira en að hafa borgað í lífeyrissjóð,“ segir hann.