Ævin­lega þakk­lát björgunar­sveitinni: „Með tárin í augunum yfir þessum litla jóla­dreng og kær­leiknum í sam­fé­laginu í Grinda­vík“

Gunnar Máni Arnar­son og Karen Björk Haf­steins­dóttir eru ævin­lega þakk­lát björgunar­sveitinni Þor­birni í Grinda­vík eftir að hafa fengið ó­metan­lega að­stoð á mánu­daginn. Þetta kemur fram í frétt DV.

„Er alveg með tárin í augunum yfir þessum litla jóla­dreng og kær­leiknum í sam­fé­laginu í Grinda­vík. Björgunar­sveitin Þor­björn vildi ekkert meira en að klára jóla­söguna sína með því að skutla okkur aftur heim og fyrir það verð ég ævin­lega þakk­látur,“ segir Gunnar Máni í færslu á Twitter.

Karen var þá gengin níu mánuði á leið með þriðja barn þeirra og fór af stað. Barnið var til­búið að koma í heiminn á sama tíma og nær allir vegir landsins voru ó­færir.

Þá er gott að Ís­land á hetjur í björgunar­sveitinni sem keyrði parið á Land­spítalann í Reykja­vík. Ekki nóg með það keyrði björgunar­sveitin parið aftur til baka í gær.