Gunnar Mýr­dal er látinn

Dr. Gunnar Mýr­dal Einars­son læknir, sér­fræðingur í brjóst­hols­skurð­lækningum og yfir­læknir Hjarta- og lungna­skurð­deildar Land­spítalans lést þann 10. septem­ber síðast­liðinn eftir harða bar­áttu við krabba­mein.

Þetta kemur fram í til­kynningu frá að­stand­endum.

Gunnar fæddist á Akra­nesi 1964 og var stúdent frá Fjöl­brauta­skóla Vestur­lands 1984. Gunnar lauk prófi frá Lækna­deild HÍ vorið 1991. Hann lauk sér­fræði­námi í al­mennum skurð­lækningum 1998 og í brjóst­hols­skurð­lækningum frá Upp­sala­há­skóla árið 2001. Gunnar varði doktors­rit­gerð sína við Upp­sala­há­skóla árið 2003 og lauk MBA námi í stjórnun við HR árið 2016.

Gunnar fór til sér­náms í Sví­þjóð árið 1996 þar sem hann starfaði við Centrallasaret­tet Västerås fyrstu 2 árin. Starfaði síðan við hjarta- og lungna­skurð­deild Upp­sala Akademiska Sjukhus þar sem hann var yfir­læknir árin 2006 – 2008. Gunnar fluttist heim til Ís­lands árið 2008 og starfaði sem sér­fræðingur við brjóst­hols­skurð­lækninga­deild LSH frá þeim tíma og var yfir­læknir við deildina frá 2016. Gunnar sat í stjórn Lækna­fé­lags Ís­lands 2018 – 2019 sem aðildar­full­trúi fé­lags sjúkra­hús­lækna. Eftir Gunnar liggja margar fræði­greinar og rann­sóknar­skýrslur.

For­eldrar Gunnars voru Einar S. Mýr­dal Jóns­son, f. 1928, d. 2018, skipa­smiður á Akra­nesi og Hulda Haralds­dóttir, f. 1929, fv. starfs­maður hjá Pósti og Síma á Akra­nesi. Eigin­kona Gunnars er Ingi­björg Kristjáns­dóttir, f. 1979, lyf­læknir og sér­fræðingur í hjarta­lyf­lækningum. Gunnar lætur eftir sig 7 börn og eina ó­fædda dóttur.