Gunnar minnist Jónínu: „Guð blessi minningu hennar“

„Mín ást­kæra Jónína Bene­dikts­dóttir er látin. Guð blessi minningu hennar,“ segir Gunnar Þor­steins­son, fyrr­verandi eigin­maður Jónínu Bene­dikts­dóttur. Jónína varð bráð­kvödd á heimili sínu í Hvera­gerði í gær, 63 ára að aldri.

Jónína og Gunnar gengu í hjóna­band árið 2010 en skildu að borði og sæng árið 2019. Þrátt fyrir það voru þau á­fram góðir vinir og báru aug­ljós­lega hlýju í brjósti hvort til annars.

Margir hafa minnst Jónínu eftir að greint var frá and­láti hennar í morgun. Steinunn Ó­lína Þor­steins­dóttir, leik­kona og fjöl­miðla­kona, sagði til að mynda að með frá­falli hennar væri farin lit­rík og marg­slungin kona sem yrði sárt saknað.

Illugi Jökuls­son, fjöl­miðla­maður og rit­höfundur, minntist hennar sem frjáls­lyndrar og fjörugrar konu sem hann kynntist á Ríkis­út­varpinu þegar hún hóf að kenna leik­fimi þar.

„Það var alltaf gaman að hitta hana á förnum vegi og stundum á Face­book seinni árin. Ég votta ást­vinum hennar alla mína sam­úð.“

Þá minnist Eva María Jóns­dóttir fjöl­miðla­kona Jónínu með hlýjum orðum, en Jónína kenndi henni leik­fimi á sínum tíma.

„Hún var mjög stór per­sóna sem ég leit upp til. Er minnis­stætt þegar hún fékk okkur nokkrar litlar stelpur til að sýna handa­hlaup og léttar leik­fimi­æfingar á af­mæli SÁÁ eða stofn­fundi í Há­skóla­bíói, var of ung til að pæla í til­efninu. En mér þótti vænt um hana og fannst hún skemmti­leg og merki­leg og ég sé eftir henni. Minningin lifir.“