Gunnar Karl Ólafsson, sérfræðingur hjá Bárunni stéttarfélagi, sparar ekki stóru orðin í gagnrýni sinni á Sólveigu Önnu Jónsdóttur, sem hætti sem formaður Eflingar í nótt. Gunnar Karl, sem starfar innan verkalýðshreyfingarinnar og skipaði sæti á lista Samfylkingarinnar í kosningunum í haust, segir í grein á Vísi að yfirlýsing hennar feli í sér ömurleg skilaboð til starfsfólksins.
Sjálfur studdi hann Sólveigu Önnu: „Áður en ég byrjaði að starfa innan hreyfingarinnar þá var ég með ofnæmi fyrir gagnrýni á hana, aðallega vegna þess að það var talað niður til hennar á ómálefnalegan hátt “Kelling sem er klikkuð“ og er ég enn með ofnæmi fyrir slíkri gagnrýni. Hún kom með ferskan blæ inn í umræðuna og skerpti á umræðunni fyrstu árin. Mikilvægasti punkturinn frá henni finnst mér að við eigum að hætta að láta láglaunafólk mæta afgangi,“ segir hann.
Hann segir að mikið hafi gengið á innan Eflingar, SGS og ASÍ síðan Sólveig tók við:
„Hún hefur í raun náð gríðarlegum árangri í að ná langflestum á móti sér þar sem að það kemur ekkert til greina annað en henni finnst, samvinnuviljinn er enginn,“ segir hann. „Það að samskipti við þessa aðila eru ekki komin í algert frostmark má þakka helst formanni ASÍ, Drífu Snædal. Ef ekki væri fyrir hana er ég viss um að við værum mikið verr stödd en við erum í dag.“
Gunnar Karl bendir á að af 58 starfsmönnum Eflingar eru einungis 6 eftir af starfsfólkinu sem unnu hjá Eflingu þegar hún tók við. „Hvers vegna neitar hún að horfa í eigin barm? Hvers vegna tekur hún ekki yfirlýsingar starfsmanna Eflingar alvarlega, hlustar á þær og reynir að bæta úr. Ef að allir eru orðnir hálfvitar í kringum þig ert þú þá kannski ekki hálfvitinn?“
Hann segir yfirlýsinguna ömurleg skilaboð:
„Yfirlýsing hennar er ömurleg kveðja til starfsfólks Eflingar og sýnir algert áhugaleysi á samvinnu, og stuðningsyfirlýsing stjórnar og varaformanns er putti í andlitið á starfsfólki. Starfsfólki sem langaði að laga þessa þætti innanhúss en það var ekki í boði. Vanþakklætið algert og ýjað að því að þetta hafi verið planað af utanaðkomandi öflum,“ segir hann.
„Ef að þetta væri annað félag utan hreyfingarinnar væru öll helstu andlit hreyfingarinnar búin að fordæma svona vinnubrögð hátt og snjallt.“