Gunnar í Krossinum og Helga trúlofuð

Gunnar Þorsteinsson, oft kenndur við Krossinn, og Helga Lúthers greindu í gær frá því að þau væru búin að trúlofa sig. Hamingjuóskum hefur rignt yfir parið síðan þau opinberuðu tíðindin á Facebook. DV greindi fyrst frá þessu.

Gunnar og Helga hafa verið saman um nokkurt skeið en Gunnar var áður kvæntur athafnakonunni Jónínu Benediktsdóttur. Gunnar er fæddur árið 1951 en Helga árið 1975.

Eins og kunnugt er var Gunnar forstöðumaður Krossins í Kópavogi á árunum 1979 til 2010.