„Þið þarna ákvörðunarfólk! Dragið nú hausinn úr myrkrinu og hættið þessu rugli,“ segir Gunnar Dan Wiium smíðakennari í mjög svo athyglisverðri aðsendri grein sem birtist á vef Vísis í dag.
Í grein sinni lýsir Gunnar þeim jákvæðu áhrifum sem CBD hefur haft á hann. Gunnar fer ekki í grafgötur með það að hann er fyrrverandi fíkill, hann byrjaði ungur að reykja gras og notaði önnur vímuefni einnig. Hann hefur verið edrú í fimm ár en segir að hann búi yfir ákveðnu ofnæmi þegar kemur að hugarfarsbreytandi efnum. Þegar hann fær þessi efni inn í kerfið getur hann illa hætt.
Í grein sinni lýsir Gunnar því að hann lifi nokkuð heilsusamlegu lífi í dag en í gegnum tíðina hafi hann glímt við króníska verki í mjóbaki, vöðvabólgu í öxlum og verki í öðru hnénu.
„Ég var að upplifa litla gleði og sjálfsmildi, svaf ekki vel og meltingin var alltaf svolítið laus. Svo svona heilt yfir, alveg ágætur en nett hakk alltaf í gangi, nett hakk sem ég lifði bara með því ástandið sem ég var að koma úr var langtum verra í alla staði.“
Skuggalegur maður á bílastæði
Hann segir að þegar bakverkirnir hafi ágerst hafi hann haft samband við lækni sem bauð honum sterk lyfseðilsskyld verkjalyf sem hann afþakkaði – minnugur áhrifanna sem slík lyf hafa haft á hann. Hann hafði því samband við vin sinn sem hafði sagt honum frá heilunarkrafti CBD á stoðkerfið. Úr varð að hann skráði sig á íslenska sölusíðu á Facebook. Hann lýsir því svo í smáatriðum hvað fyrir augu bar skömmu síðar.
„20 mínútum seinna stend ég á bílastæði bensínstöðvar í Borgartúninu með 16.000,- kall í vasanum. Ég hef staðið í þessum aðstæðum áður, beðið eftir dílernum eins og hann sé rokkstjarna. Dílerar koma alltaf seint, hef aldrei hitt stundvísan díler. En þeim er alltaf fyrirgefið því eru með stöffið.
Seint um síðir mætir hann. „Líttu eftir stórum Audi með dökkar rúður og stórar álfelgur, hann mun ekki fara fram hjá þér.“ Þetta voru skilaboðin.
Audíinn rennir inn á stæðið og út kemur steríótýpan af díler, tússaður fram fyrir ermar og upp fyrir hálsmál. Hann er meganice og fullur samkenndar hvað varðar CBD og THC-ið reyndar líka. Sagðist vera öryrki eftir slys og nú væri hann bara að redda sér. Greinilega með góðum árangri því bara blekið sem hann hafði sprautað í sig kostuðu nokkur mánaðarlaunin mín, talandi nú ekki um sendiráðslimmuna hann mætti á í snattið.
Ég borga honum með seðlabúntinu og tek á móti lítilli flösku með áföstum dropateljara. Seðlarnir hverfa þarna ofan í svarthol svarts hagkerfis „never to be seen again“.“
Hræddist þetta í fyrstu
Það er skemmst frá því að segja að Gunnar prófaði dropana, fjóra dropa undir tunguna af fullspec CBD olíu. Hann viðurkennir að þetta hafi hrætt hann, meðal annars af þeirri ástæðu að möguleiki væri á að hann leiddist út í fyrri neyslu. Þá óttaðist hann að finna fyrir vímuáhrifum og ekki síst áliti annarra ef þetta myndi fréttast. Því hélt hann þessu leyndu til að byrja með.
Til að gera langa sögu stutta fann hann ekki fyrir neinum slíkum áhrifum. Áhrifin voru þau að að verkirnir sem höfðu ágerst voru horfnir og hann fór að réttast af líkamlega. Þá fann hann ekki fyrir neinum fráhvörfum ef hann tók pásu.
„Það var eins og ég hefði meira pláss að innan, eins og ég væri laus við bólgur og vesen. Skapið breyttist í kjölfarið. Fór að brosa meira, hegðun mín og hugsun fór einkennast meir af sjálfsmildi. Ég fór að sofa betur og meltingin varð mun betri.“
Misbýður þessi forræðishyggja
Svo vill til að innflutningur á CBD olíum, framleiddum sem fæðubótarefni, er bannaður hér á landi. Gunnar gagnrýnir það harðlega og segir að ákveðnir fordómar liggi þar að baki.
Hann rifjar svo upp að síðastliðið voru hafi innflutningur og sala á fræjum iðnaðarhamps verið gerð lögleg. Að uppskeru lokinni má þurrka og vinna stönglana og eru þeir nýttir til dæmis í einangrun, textíl og margt fleira. Þegar stönglarnir hafa verið teknir standa eftir blóm og blöð og þau má þurrka og framleiða til dæmis te úr hráhampinum. En ef Kannabíóðarnir eru vaktir eða virkjaðir í gegnum hita gerist hann lögbrjótur. „Ef ég innbyrði bakaðan hamp, hvort sem í smoothi eða undir hefðbundinni tedrykkju gerist ég lögbrjótur.“
Gunnar segir að honum misbjóði þessi forræðishyggja. Hann nefnir að í fyrrasumar hafi hann ákveðið að gróðursetja og rækta um 200 plöntur af iðnaðarhampi í garðinum hjá sér, en þremur mánuðum síðar voru plönturnar orðnar 160 sentímetra háar og fullar af blómum og blöðum.
„Ég var mjög stoltur með sjálfan mig þegar ég stóð uppi með 200 grömm af ofnbökuðum blöðum og blómum hér í haust. Kolólögleg framleiðsla hér í Rauðagerðinu en mér var misboðið og tilbúin að taka hvaða afleiðingum sem er,“ segir hann.
Verkirnir nánast horfnir
Í dag er staðan þannig að hann drekkur 2-4 bolla af CBD-hampi þrisvar til fjórum sinnum í viku. „Tedrykkjan hefur slakandi áhrif á mig. Verkir í baki eru nánast horfnir, kemur fyrir ef ég er undir of miklu álagi. Ég er rýmri að innan, þá líkamlega sem og að það er rýmra í hugarfari mínu, vitundinni.“
Gunnar segist vera í skýjunum yfir þessu og kveðst hann hlakka til næsta sumars þegar hann ætlar að hefja ræktun á nýjan leik.
„Eins og er liggur hundurinn grafinn hjá Lyfjastofnun sem flokkar CBD sem lyfjaefni í stað fæðubótar. Forsenda þeirrar flokkunar er sú að í tveim lyfseðilsskyldum lyfjum, Satvex og Epidiolex er uppistaðan Kannabíóðar. Þessi lyf eru gefin út á Íslandi í örfáum skömmtum við MS, Dravet syndrome og Lennox-Gastaut syndrome.
Þið þarna ákvörðunarfólk! Dragið nú hausinn úr myrkrinu og hættið þessu rugli. Ef þið viljið stuðla að sameiginlegri velferð og bættri lýðheilsu þá gerið CBD fæðubótarefni aðgengilegt fyrir okkur fólkið.“