„Gleymum aldrei að líta í eigin barm þegar reiðin, dómharkan og ósanngirnin virðast ætla að taka völdin hið innra,“ segir Gunnar Kvaran, sellóleikari og prófessor við Listaháskóla Íslands, í athyglisverðri grein sem hann skrifaði í Morgunblaðið um helgina.
Þar skrifaði Gunnar um COVID-19-faraldurinn hér á landi og viðbrögð þríeykisins svokallaða, ríkisstjórnarinnar og Kára Stefánssonar í upphafi faraldursins. Segir hann að viðbrögð þeirra allra hafi verið aðdáunarverð.
„Nú hefur komið í ljós að Covid 19- veiran sem hér hefur herjað frá því í júlí virðist mildara afbrigði af þessum hættulega faraldri en hér geisaði síðastliðinn vetur. Allir vita að þessi skaðvaldur hefur valdið gífurlegu tjóni um allan heim, bæði efnahagslegu, félagslegu og heilsufarslegu. Nú fjölgar þeim röddum hér á landi sem gagnrýna stjórnvöld harðlega fyrir þær ströngu reglur sem settar voru í seinni faraldrinum og telja að ráðamenn hafi farið offari í varúðarráðstöfunum.“
Gunnar segir að það sé alltaf auðvelt að vera vitur eftir á og ábyrgð þeirra einstaklinga sem taka ákvarðanir til að vernda heilsu þjóðarinnar sé gífurleg og álagið eftir því.
„Ég tel engum vafa undirorpið að sjaldan hafi nokkur ríkisstjórn hér á landi staðið frammi fyrir öðrum eins vanda og núverandi ríkisstjórn. Verkefni hennar eru geysilega krefjandi, flókin og margbreytileg. Enginn mannlegur máttur getur gert öllu jafn góð skil eða séð fyrir endann á öllum þörfum í atburðarás sem er mjög hröð. Sýnum þessu fólki virðingu og þakklæti því það leggur sig fram af öllum mætti. Snúum bökum saman því sameinuð erum við sterk. Ég hvet alla landsmenn til að sýna stillingu, samheldni, sanngirni og hjálpsemi, ekki síst gagnvart þeim sem eiga nú bágast hér í þessum heimi,“ segir Gunnar í grein sinni og bætir við að við ættum að líta inn á við og spyrja okkur sjálf hvernig við getum veitt hjálp í þessum vanda.
„Lýðræðisleg umræða og gagnrýni sem er sanngjörn og sett fram af velvilja, en ekki til að klekkja á pólitískum andstæðingum, er uppbyggileg í öllum ríkjum sem kenna sig við lýðræði. Ómaklegar árásir eru ekki til þess fallnar að styrkja þau bönd sem tengja okkur saman sem þjóð. Gleymum aldrei að líta í eigin barm þegar reiðin, dómharkan og ósanngirnin virðast ætla að taka völdin hið innra. Hversu lengi þessi veira muni herja á mannkynið veit enginn með vissu en við verðum með öllum ráðum að reyna að lifa með þessum faraldri, skapa ný tækifæri og aðlaga okkur að breyttum heimi. Í þessum erfiðu aðstæðum hefur mannkynið möguleika á að skapa nýjan heim, betri heim, fyrir okkur og afkomendur okkar. Að ganga veg sannleika, góðleika og fegurðar hefur alltaf í för með sér einhverjar fórnir, en sú vegferð mun óhjákvæmilega leiða okkur til betra lífs.“