Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtakanna, segir að Lilja Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins, hafi í raun vísað honum á dyr í móttöku Framsóknarflokksins eftir setningarathöfn Búnaðarþings á fimmtudag.
Morgunblaðið fjallar um málið í dag.
Í fréttinni kemur fram að Framsóknarflokkurinn – eins og raunar fleiri flokkar – hafi haldið móttöku fyrir bændur, stjórn og framkvæmdastjórn Bændasamtakanna eftir setningarathöfnina.
Gunnar er sagður hafa komið í veisluhöld Framsóknarflokksins og fengið heldur kaldar móttökur frá Lilju þegar hún sá hann á staðnum.
„Gunnar, hvað ert þú að gera hér?“ Sjálfur er hann sagður hafa gert tilraun til að faðma Lilju en hún brugðist við með því að stoppa hann af. Eftir stutt orðaskipti ákvað Gunnar að yfirgefa svæðið. „Móttakan í anddyrinu var þannig að ég sá ekki ástæðu til að vera þar áfram. Ég ætlaði bara að heilsa henni,“ segir Gunnar við Morgunblaðið og upplifun hans hafi verið sú að hún vildi ekki hafa hann þarna.
Lilja hefur aftur á móti aðra sögu að segja og segir hún við Morgunblaðið að hún sé gjörn á að gantast. Það hafi hún verið að gera þegar hún heilsaði Gunnari. Telur hún hann hafa móðgast óþarflega mikið. Þá sé hún ekki mikið fyrir faðmlög sem kona í stjórnmálum.
Lilja viðurkennir þó að hún hafi ekki verið hrifin af framgöngu Gunnars vegna Garðyrkjuskólans á Reykjum en hann var nokkuð áberandi í gagnrýni sinni á rekstri hans þegar Lilja var menntamálaráðherra.