„Áreiðanlegar heimildir herma, að Dagur borgarstjóri hafi boðið Ármanni bæjarstjóra í mikið rauðvín í ráðhúsinu í Reykjavík, og talað hann inn á þessa slæmu útfærslu,“ segir Gunnar I. Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri í Kópavogi, í athyglisverðum pistli sem birtist í nýjasta tölublaði Kópavogspóstsins.
Í pistli sínum skrifar Gunnar um nýja útfærslu á tengingu Arnarsvegar, sem liggur frá Rjúpnavegi, að Breiðholtsbraut. „Athygli vekur, að tengingin við Breiðholtsbraut er með brú og ljósastýrðum gatnamótum,“ segir Gunnar en þetta þykir honum afleit útfærsla.
„Með þessari tilhögun munu myndast biðraðir bíla og tilheyrandi umferðartafir. Benda má á, að ljósastýrð gatnamót Jaðarsels/Breiðholtsbrautar eru um það bil 400 metra vestan þessara fyrirhuguðu ljósastýrðu gatnamóta, sem bætir ekki stöðuna,“ segir Gunnar sem bætir við að bæjarstjórn Kópavogsbæjar eigi að halda sig við upphaflega útfærslu sem eru mislæg gatnamót. Þannig mætti tryggja gott umferðarflæði. Önnur útfærsla væri að tengingin yrði með tvöföldu hringtorgi.
Gunnar veltir fyrir sér hvers vegna Kópavogsbúar séu komnir í þá „afleitu stöðu“ að eiga yfir höfði sér fleiri umferðarhnúta við tengingar til Reykjavíkur. Segir hann að Dagur hafi „boðið Ármanni bæjarstjóra í mikið rauðvín“ og talað hann inn á hugmyndina. Óvíst er hvað Gunnar hefur fyrir sér í þeim efnum.
„Alþekkt er stefna Reykjavíkurborgar gagnvart tilvist einkabílsins en þar á bæ virðist allt gert til að tefja og hindra eðlilegt umferðarflæði þeirra sem kjósa að nota þennan ferðamáta, sem eru nánast allir. Bæjarstjórinn í Kópavogi fullyrðir að þessi útfærsla hafi verið samþykkt en fáir bæjarfulltrúar kannast við það. Bæjarstjórn Kópavogs verður að snúa þessum afleik bæjarstjórans við og koma með betri lausn á þessari tengingu fyrir okkur Kópavogsbúa.“
Gunnar er ekki stærsti aðdáandi Ármanns Kr. Ólafssonar, bæjarstjóra Kópavogs, en í síðasta tölublaði Kópavogspóstsins skrifaði hann pistil þar sem hann fann núverandi meirihluta flest til foráttu.