Gunnar Bragi vill sjá samningana sem Svandís gerði við lyfjafyrirtækin

Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Miðflokksins, hefur óskað eftir að Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, afhendi þingmönnum nú þegar afrit af samningum þeim sem íslensk stjórnvöld hafa gert við lyfjafyrirtæki um kaup á bóluefnum við COVID-19. Greint er frá þessu á vef Viljans.

Ísland hefur gert samninga um kaup á bóluefni við Pfizer, Astra-Zenica og Moderna. Næsta sending er væntanlegt 21. janúar. Ekki liggur fyrir hvenær nóg af bóluefni kemur til landsins til að hægt sé að ná hjarðónæmi við kórónusveirunni.

Gunnar Bragi sendi bréf með fyrirspurninni til Steingríms J. Sigfússonar, forseta Alþingis, í gær. Áður hafði Gunnar Bragi óskað eftir upplýsingum frá heilbrigðisráðherra um stöðu samninga um bóluefni, áætlanir um bólusetningar og fleira. Þá óskaði Miðflokkurinn eftir því að Alþingi fundaði um bóluefnin milli jóla og nýárs, en ákveðið var að þingmenn fengju minnisblað um stöðu mála í staðinn.