„Ríkisstjórnin þarf að hætta að skemmta sér og taka af skarið,“ sagði Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Miðflokksins, í ræðu á þingi í dag. Um er að ræða síðsumarþing og eru nokkur stór mál til umræðu, til dæmis aðgerðir vegna COVID, fjármálastefna og ríkisábyrgð af lánalínu til Icelandair.
Í ræðu sinni í dag ræddi Gunnar Bragi meðal annars aðgerðir ríkisstjórnarinnar í kórónuveirufaraldrinum hingað til. Sagði hann að ríkisstjórnin hefði verið heldur sein til aðgerða síðla síðasta vetrar og í vor þegar ljóst var í hvers konar vanda stefndi.
Ákvarðanir til skamms tíma
„Aðgerðirnar sem loks komu voru ekki almennar heldur sértækar og tímabundnar og nú er byrjað að framlengja þær. Ríkisstjórnin er því enn að taka ákvörðun til skamms tíma en ekki horfast í augu við það að vandinn er til langs tíma,“ sagði hann og bætti við að ríkisstjórnin hefði reyndar notið þess að geta látið embættismenn standa í framlínunni í því að boða aðgerðir.
„Þar til nýverið höfum loksins þurfti að taka ákvörðun sem sneri að landamærum landsins. Þá ákvað ríkisstjórnin að loka landinu með svo skömmum fyrirvara að ferðamenn þurftu jafnvel að snúa við í Leifsstöð þar sem við blasti lokað land,“ sagði Gunnar Bragi og bætti við að það að loka landinu væri ákvörðun sem hægt væri að rökstyðja. Væri hins vegar ekki hægt að samþykkja og rökstyðja að það ríkir stefnu- og forystuleysi í aðgerðum ríkisstjórnarinnar.
Ríkisstjórnin hafi hamrað á því að veiran muni blossa upp aftur, en samt hafi engin áætlun verið til um hvernig eigi að bregðast við
„Hvers konar vinnubrögð eru það að segjast búast við að veiran blossi upp aftur en hafa svo engar áætlanir um viðbrögð? Hvers konar vinnubrögð eru það hjá ríkisstjórninni að setja hundruð milljóna í að auglýsa landið, lokað því svo á einni nóttu? Hvað á það að þýða að eyðileggja orðspor landsins með stefnulausum ákvörðunartökum?“
Veit ekki hvert hún er að fara
Gunnar Bragi sagðist velta fyrir sér hvers vegna fyrirtæki í ferðaþjónustu ættu að reyna að selja ferðir til Íslands þegar óvissan sé algjör í boði ríkisstjórnarinnar.
„Aðilar í ferðaþjónustu kvarta eðlilega yfir óvissunni en hafa fyrir vikið orðið fyrir ósanngjarnri gagnrýni vegna þess eins að kalla eftir fyrirsjáanleika fyrir sitt starfsfólk og sína starfsemi. Vandi okkar er sá að við erum með ríkisstjórn sem veit ekki hvert hún er að fara.“
Þá gagnrýndi Gunnar Bragi það að ríkisstjórnin hefði hafnað öllu samstarfi við Miðflokkinn líkt og aðra stjórnarandstöðuflokka. Eina krafan sé í raun að ríkisstjórnin leggi fram áætlun þar til bóluefni við veirunni verður komið á markað. Vill Gunnar Bragi fá svör við því hvernig staðið verður að opnun landsins og hvað þurfi til þess að það verði opnað.
„Ríkisstjórnin þarf að hætta að skemmta sér og taka af skarið,“ sagði hann og bætti við að nú þurfi að gera strax það sem hefði átt að vera búið að gera: Koma heimilum og fyrirtækjum í skjól.
„Ef ríkisstjórnin hefur ekki það sem þarf á hún að fara frá og kalla aðra til, því það þarf sterka forystu til að taka djarfar og stórar ákvarðanir og standa með þeim.“