Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Miðflokksins, lætur ríkisstjórnina heyra það rækilega í pistli sem hann skrifar í Morgunblaðið í dag.
„Miðflokkurinn hefur gagnrýnt stefnuleysi ríkisstjórnarinnar í baráttunni við kórónuveirufaraldurinn. Ríkisstjórnin ákvað að loka landinu með svo skömmum fyrirvara að ferðamenn þurftu að snúa við í Leifsstöð þar sem við þeim blasti lokað land. Það að loka landinu er ákvörðun sem hægt er að rökstyðja líkt og hægt er að rökstyðja aðferðir Dana sem eru svipað staddir og Ísland með hlutfallslegan fjölda smita en ekki lokuð landamæri,“ segir Gunnar Bragi í grein sinni.
„Mánuðum saman hafa ráðherrar hamrað á því að við séum ekki sloppin, veiran muni sennilega blossa upp aftur, við þurfum að gæta okkar, vera viðbúin annarri bylgju o.s.frv. Milljarðar hafa runnið úr ríkissjóði vegna faraldursins, m.a. í að auglýsa landið, plástra vinnumarkaðinn, greiða bætur, öskra í kassa, algerlega stefnulaust, algerlega áætlanalaust og algerlega án framtíðarsýnar. Hvers konar vinnubrögð eru það að segjast búast við að veiran blossi upp aftur en hafa svo engar áætlanir um viðbrögð? Hvers konar vinnubrögð eru það að setja hundruð milljóna í að auglýsa landið en loka því svo á einni nóttu? Hvað á það að þýða að eyðileggja orðspor landsins með fyrirvaralausum ákvörðunum?
Gunnar Bragi segir að svo virðist sem langtímastefna sé ekki til. Hann spyr hvers vegna engar áætlanir séu til ef ríkisstjórnin gerði ráð fyrir að veiran myndi líklega koma aftur.
„Hvernig eiga íslensk heimili og fyrirtæki að lifa af þegar ríkisstjórnin býr til óvissu í stað þess að reyna að eyða henni? Framlengja á tímabundnar aðgerðir þegar skammur tími er þar til þær eiga að renna út. Hver er sýn þessarar ríkisstjórnar? Hvar er forystan fyrir þjóðina þegar á þarf að halda?“
Gunnar Bragi ítrekar svo að ríkisstjórnin hafi hafnað samstarfi við Miðflokkinn líkt og aðra stjórnarandstöðuflokka. Því hljóti að vera hægt að krefjast þess að ríkisstjórnin leggi fram áætlanir um viðbrögð því veiran sé ekki á leið burt fyrr en búið er að bólusetja fyrir henni.
„Á landið að vera áfram lokað? Ef ekki, hvernig verður það opnað? Hvað þarf til að það verði opnað? Hvað verður gert þegar veiran gýs aftur upp? Hvaða fyrirvara hafa fyrirtæki og heimili komi til aðgerða? Eru til áætlanir er varða stóraukið atvinnuleysi, vanskil heimila og fyrirtækja eða ætlar ríkisstjórnin að láta fjármálaöflunum eftir að ákveða hverjir lifa og deyja? Koma verður heimilum og fyrirtækjum í skjól, líka þeim sem eiga allt sitt undir leigusölum, og koma í veg fyrir að gengið sé að eignum fólks. Að því mun koma verði ekkert gert. Nú þarf forystu.“