Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Miðflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra, er ósáttur við þá ákvörðun Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis að hleypa íslensku Eurovision-förunum, Daða og Gagnamagninu, fram fyrir röðina í bólusetningu gegn COVID-19.
„Furðulegt að hleypa þeim fram fyrir. Enn eru dæmi um fólk með undirliggjandi sjúkdóma sem ekki hafa fengið bólusetningu og þá er þetta júróvísjón sett í forgang. Ætli að séu fleiri skemmtikraftar sem geta fengið undanþágu ? Hvað með þá sem þurfa erlendis vegna vinnu eða að sinna veikindum í fjölskyldu? Fá þeir forgang,“ spyr Gunnar Bragi á Facebook-síðu sinni.
Þórólfur sagði í samtali við fréttavef DV í morgun að beiðni hafi borist frá RÚV vegna hópsins um bólusetningu gegn COVID-19. Hópurinn myndi umgangast marga og þar að auki sé COVID-tíðnin há í Hollandi.
„Þá kom þessi beiðni og hún var rædd og við höfum verið mjög treg við það að taka svona hópa fram fyrir en ákváðum eftir umræður að þetta væri kannski sanngjörn krafa þegar við værum að senda þetta fólk út í þetta – að bólusetja þau. Og ég vona að það hafi verið rétt ákvörðun því þau voru þarna útsett og einn virðist hafa smitast svo ég held við getum bara verið ánægð með þá ákvörðun ef það kemur í veg fyrir veikindi hjá þessu fólki,“ sagði Þórólfur í samtali við DV.
Ekki hafa ýkja margar athugasemdir verið skrifaðar við færslu Gunnars Braga. Einn segir honum þó að hætta þessu væli og það er eitthvað sem Gunnar Bragi lætur ekki bjóða sér.
„Hvað meinarðu? Finnst þér eðlilegt að manneskja sem fengið hefur blóðtappa, heilablóðfall, krabba ofl. sé látin bíða? Er það væl? Ótrúlegt að þér skuli finnast í lagi að þessir skemmtikraftar séu teknir fram fyrir,“ segir hann.