Gunnar Bragi: Barna­skapur að halda að bara gott fólk leiti til Ís­lands

„Það er barna­­skap­ur að detta í hug að ein­­göngu gott fólk í hættu leiti til Ís­lands. Hvers vegna ættu glæpa­­menn ekki að leita hingað líkt og til annarra landa?“

Þetta segir Gunnar Bragi Sveins­son, þing­maður og vara­for­maður Mið­flokksins, í að­sendri grein í Morgun­blaðinu í dag.

Þar skrifar Gunnar Bragi um mál­efni hælis­leit­enda sem hafa verið tals­vert í um­ræðunni hér á landi undan­farin misseri. Bendir Gunnari Bragi að um­ræðan snúi að mark­vissari vinnu­brögðum stjórn­valda í mála­flokknum. Skýtur hann á Sjálf­stæðis­flokkinn þegar hann segir að ráð­herrar sem hafa farið með mál­efni hælis­leit­enda og landa­mæra landsins hafi undan­farna ára­tugi komið úr Sjálf­stæðis­flokknum. Það skýrir að­gerða­leysið í mála­flokknum.

„Ráð­herr­arn­ir hafa forðast að horf­ast í augu við vand­ann, að um alla Evr­ópu eru ein­stak­ling­ar að sækja um hæli og eða vernd að til­­efn­is­lausu,“ segir Gunnar Bragi sem bætir við að um­ræðan um þetta hafi verið lítil og ó­mál­efna­leg.

„Marg­ir sem hafa varað við þess­ari þróun eru sakaðir um öfg­ar og rang­indi. Varla get­ur nokk­ur hugs­andi maður lagst gegn því að herða regl­ur svo færri leggi upp í til­­­gangs­laus­ar hættu­­ferðir með smygl­ur­um og verja landið fyr­ir mögu­­leg­um glæpa­­mönn­um,“ segir Gunnar Bragi og bætir við að nú séu margir að vakna upp við vondan draum, ekki séu allir hælis­leit­endur í leit að betra lífi. Glæpa­hópar lifi góðu lífi á að selja ferðir til betra lífs en skeyti ekki um hvað verður um fólkið.

Gunnar Bragi nefnir að Frakk­lands­for­seti hafi að undan­förnu rætt mjög um nauð­syn þess að verja betur ytri landa­mæri Schen­gen-svæðisins. „Meðal þess sem Macron hef­ur sagt er að nauð­syn­­legt sé herða landa­­mæra­vörslu, eyða skila­­boðum hryðju­­verka­manna af Inter­netinu fljótt, koma í veg fyr­ir mis­­not­k­un hælis­leit­enda­kerfisins o.fl.,“ segir Gunnar Bragi sem vísar í ný­legt við­tal við Macron þar sem hann sagði að í flestum löndum löndum væru til dæmi um mis­notkun á réttinum til að leita hælis.

„Það er barna­­skap­ur að detta í hug að ein­­göngu gott fólk í hættu leiti til Ís­lands. Hvers vegna ættu glæpa­­menn ekki að leita hingað líkt og til annarra landa? Því blas­ir við að herða þarf eft­ir­lit á landa­­mær­um, taka þarf upp þá reglu að þeim sem áður hafa fengið dval­ar­­leyfi inn­an Schen­gen verði þegar snúið til baka, að þeir sem sann­ar­­lega eiga rétt á að þeirra mál séu skoðuð fái niður­­­stöðu inn­an 2-4 mánaða, þeir sem fá hæli fái við­eig­andi að­stoð, að skila­­boðum um nýj­ar regl­ur sé komið vel á fram­­færi o.fl. Við Ís­lend­ing­ar get­um ekki setið eft­ir þegar aðrir bregðast við.“