Gunnar Birgisson, fyrrverandi þingmaður og bæjarstjóri, er látinn, 73 ára að aldri. Gunnar lést á heimili sínu í gær.
Greint er frá andláti Gunnars í Morgunblaðinu í dag.
Gunnar fæddist í Reykjavík 30. september 1947. Hann var kvæntur Vigdísi Karlsdóttur sjúkraliða og eiga þau saman dæturnar Brynhildi og Auðbjörgu Agnesi sem eru fæddar 1968 og 1976.
Gunnar varð stúdent frá MR árið 1972 og lagði síðan stund á verkfræði; fyrst grunnám í Háskóla Íslands áður en hann hlaut meistaragráðu í byggingaverkfræði frá Edinborg og doktorspróf í jarðvegsverkfræði frá Háskólanum í Missouri árið 1983.
Gunnar varð varaþingmaður árið 1992 og þingmaður frá 1999 til 2006 fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hann tók við sem bæjarstjóri Kópavogs árið 2005 og gegndi því starfi til 2009. Hann varð svo bæjarstjóri Fjallabyggðar árið 2015 og starfaði þar til ársins 2019.