Guðmundur Þórarinsson, tónlistarmaður og knattspyrnumaður, skrifar falleg orð um bróður sinn, Ingólf Þórarinsson, á Instagram í dag. Kveðjan er skrifuð í tilefni af 36 ára afmæli Ingólfs í dag en eins og kunnugt er hefur hann verið mikið á milli tannanna á fólki undanfarin misseri.
Nú síðast í gær tapaði Ingólfur máli sem hann höfðaði gegn Sindra Þór Sigríðarsyni og varðaði ærumeiðandi ummæli sem féllu á netinu. Ásakanir um meint kynferðisofbeldi Ingólfs birtust á samfélagsmiðlum á síðasta ári og í kjölfarið missti hann fjölmörg verkefni.
Í færslu sem Guðmundur birti á Instagram Story fer hann fögrum orðum um stóra bróður sinn sem er sex árum eldri. Birtir hann til að mynda mynd af þeim bræðrum frá þeim tíma þegar þeir voru litlir.
„Ég og afmælisbarn dagsins. Hann hefur marga fjöruna sopið og ekki alltaf verið til fyrirmyndar og farið rétt með sína velgengni á sínu sviði. Hann er samt ekki barnaníðingur né nauðgari og það er ekki í lagi að hópur af fólki kasti slíku fram á netið án sannana aftur og aftur,“ segir Guðmundur sem er kallaður Gummi Tóta og hefur gert fína hluti sem tónlistarmaður og auk þess leikið með íslenska landsliðinu í fótbolta. Guðmundur heldur áfram:
„Málefnið er flott en það þarf heilbrigða einstaklinga til að stjórna þeirri umræðu. Hann hefur oft verið til fyrirmyndar, skemmt fólki, afrekað frábæra hluti og alla tíð verið góður bróðir. Sem náinn aðstandandi að horfa upp á þetta hefur oft verið óraunverulegt og mjög erfitt.“
Guðmundur segist geta komið með svo margar fallegar sögur af Ingó að koma vel fram við annað fólk og hver hann raunverulega er sem manneskja.
„Ég gef engan afslátt við hann (eða aðra vini og vandamenn) þegar kemur að hans breyskleika og baráttu við sjálfan sig. En fólk á ekki að fá að kalla annað fólk hvað sem er á netinu eins og ekkert sé.“