Gummi segir okkur Ís­lendinga þurfa að verja landið: „Annars gerist kannski eins og í Sví­þjóð – fleiri glæpa­gengi“

Heilsufrömuðurinn Guðmundur Emil Jóhannsson, betur þekktur sem Gummi Emil segir að Íslendingar þurfi að verja landið sitt betur og að það þurfi að hafa stefnu í innflytjendamálum. Hann segir að fólk sem komi hingað verði að aðlagast landinu og hrósar hann Sigmundi Davíð Guðlaugssyni og Miðflokknum fyrir að vera einu sem geri eitthvað í þessum málum.

„Þurfum að verja landið okkar,“ skrifar Gummi á Instagram, en þar er hann með yfir tólf þúsund fylgjendur.

„BOOM gerist kannski eins og í svíþjóð.. fleiri glæpagengi, fleiri glæpir svo boom löggan þarf allt í einu byssur...? Fokking rugl að láta liðið fá byssur, strax komnar með rafbyssur og eh rugl...,“ skrifar Gummi.

Að hans sögn þorir engin að tala um þessi mál, en hann ætlar að taka það á sig.

„Fólk þarf að aðlagast landinu.. það þarf stefnu og skipulag,“ skrifar Gummi og tekur svo fram að það sé mjög auðvelt að misskilja það sem hann er að segja. Honum sé þó sama, þeir skilja sem skilja.

„Verndum landið okkar áður en það er of seint,“ skrifar Gummi.

Í seinni færslum segir Gummi að það eigi að taka á móti fólki með ást og kærleika, en að ekki sé hægt að taka inn endalaust af fólki.

„Fólk þarf að aðlagast samfélaginu,“ skrifar Gummi að lokum.