Gummi Jör setur tappann á flöskuna: „Þetta er komið gott“

Fatahönnuðurinn og Twitter grínistinn Guðmundur Jörundsson hefur sett tappann á flöskuna til frambúðar. Hann tilkynnir þetta í einlægri færslu á Twitter.

Þar segist hann ætla að setja þetta út í kosmósinn svo þetta haldi. Hann átti sinn fyrsta edrúdag þann 19. mars síðastliðinn.

„Jæja krakkar nú er þetta er komið gott! Set þetta út í kosmósinn svo það haldi. Dagurinn í gær 19. mars 2022 er nýi edrúdagurinn minn. Það er gaman að vera fullur en ég bara nenni ekki eyða meiri orku í allt þetta recovery & sjálfshatur.

Nú er það bara club mate, kaffi og sígó!“