Gummi Jör ætlaði að grínast með Eflingu en fékk Viðar í at­huga­semda­kerfið

Fata­hönnuðurinn Guð­mundur Jörunds­son, sem er vel þekktur grín­isti á sam­fé­lags­miðlinum Twitter, grínast með fréttir af kostnaði við upp­setningu nýrrar vef­síðu Eflingar. Úr verður nokkurt rifrildi.

Er Guð­mundur þar að vísa til fréttar Frétta­blaðsins af því að Andri Sigurðs­son, um­sjónar­maður Jæja og fé­lagi í Sósíal­ista­flokknum, hafi fengið rúmar 20 milljónir greiddar til að hanna nýja vef­síðu Eflingar.

Guð­mundur Jör skrifar á léttu nótunum: „Jæja þa er maður bara alveg að verða buinn að klára heima­síðuna það gera 20 milljónir.“

Ljóst er að Viðar og fé­lögum finnst brandari Guð­mundar ekki fyndinn en þeir hrannast í at­huga­semda­kerfið á miðlinum til að svara honum.

Viðar skrifar: „Þú ert að taka þátt í að bera út at­vinnu­róg um heiðar­legan mann sem vann þá vinnu sem hann var beðinn um. Er gaman að vera með?“

Þá svarar Guð­mundur til baka: „Æi Viðar ég er nú bara að gera grín að þessu mjög ó­skýra máli og fréttum sem hafa verið af þessu málum. Og ekki voru svörin hans Andra mikið skýrari nema að verkið hafu verið klárað á­samt árs­skýrslu.“

Viðar svarar til baka og segir Andra vinna fyrir Eflingu því starfs­fólk leiti mikið til hans. „Af því að hann er klár og fjöl­hæfur fag­maður. Nú á að rústa mann­orði hans með því að ýja að því að hann gefi út falsaða reikninga, en mátu­lega “ó­skýrt” til allir geti tekið undir og fengið að vera með.“

Fleiri tíst má sjá hér að neðan: