Gummi Ben rifjar upp sturlunina á EM sem gerði hann heims­frægan: „Annars bara góður“

Slétt sex ár eru liðin frá því að nýr kafli í í­­þrótta­­sögu Ís­­lendinga var skrifaður á Stade de France leik­vanginum í Frakk­landi þegar að ís­­lenska karla­lands­liðið í knatt­­spyrnu vann 2-1 sigur á Austur­­ríki og tryggði sér sæti í 16-liða úr­­slitum Evrópu­­mótsins.

Arnór Ingvi Trausta­­son skoraði sigur­­mark Ís­lands í upp­­bóta­­tíma, mark sem varð til þess að ís­­lenska liðið fékk leik gegn Eng­­lendingum í 16-liða úr­­slitum, saga sem allir vita hvernig endaði.

Arnór Ingvi var þó ekki sá eini sem skráði sig í sögu­bækurnar heldur varð Guð­mundur Bene­dikts­son eða Gummi Ben eins og við Ís­lendingar þekkjum hann, heims­frægur á svip­stundu fyrir ó­trú­lega lýsingu.

Gummi deilir sjálfur mynd­bandinu sem fór sigur­för um heiminn. „6 ár í dag…..annars bara góður,“ skrifar Gummi en það er ærið til­efni til að horfa á markið og mynd­bandið aftur í dag til að minnast sögu­legrar stundar í ís­lenskri knatt­spyrnu.

Hér að neðan má svo sjá markið sjálft með lýsingu Gumma en myndbandið hefur fengið hátt í 300 þúsund áhorf.