Gulli fer hvergi: „Engin dæmi um annað“

Guð­laugur Þór Þórðar­son býst við því að vera á­fram um­hverfis­ráð­herra. Þetta kemur fram í við­tali við ráð­herrann á vef Frétta­blaðsins.

„Það eru nú engin dæmi um annað þegar kosið er á milli manna, þannig ég vinn bara á­­fram eins og ég lofaði lands­fundar­­gestum,“ segir Guð­laugur í sam­tali við Frétta­blaðið.

„Ég held bara á­­fram að vinna að fram­­gangi sjálf­­stæðis­­stefnunnar og geri svo sannar­­lega í mínu ráðu­neyti og mun halda því á­­fram,“ segir Guð­laugur.

Hann segist eiga í góðum sam­skiptum við Bjarna. „Við höfum náttúru­­lega bara hist á fundum og það hefur verið bara eins og áður,“ segir Guð­laugur Þór.

Við­talið við Guð­laug í heild sinni má lesa hér.